Fyrstu skref Silju Sóleyjar BIrgisdóttur, oddvita Sósíalistaflokksins, nái hún sæti í borgarstjórn verða að kynnast kerfinu. Sósíalistar mælast með 4% fylgi samkvæmt nýjustu tölum og myndu því fá einn borgarfulltrúa.
Hún vonast eftir meirihluta til vinstri og segist sjá tækifæri fyrir gott samstarf á vinstri vængnum.
„Ég held að það sé búin að vera hægri sveifla víðs vegar, við sjáum þetta líka alþjóðlega. Það er margt sem spilar saman en mér líst ekkert á blikuna.“