Karlmaður um fertugt var í Héraðsdómi Reykjaness á föstudag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til tveggja vikna vegna rannsóknarhagsmuna í þágu rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegu atviki í Kársneshverfi Kópavogs á sunnudag fyrir viku.
Karlmaður á sextugsaldri með skotsár leitaði þá í bakarí í hverfinu illa á sig kominn og var í kjölfarið fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann þar sem hann gekkst undir aðgerð. Maðurinn var ekki í lífshættu.
Eiríkur Valberg, fulltrúi í miðlægri rannsóknardeild, segir í samtali við mbl.is að rannsókninni miði vel en verið sé að skoða ýmis álitaefni ásamt sérfræðingum.
Eiríkur kveðst ekki geta veitt frekari upplýsingar um álitaefnin eða sérfræðingana sem um ræðir að öðru leyti en að um sérfræðinga hér á landi sé að ræða.
Telur sig hafa skýra mynd af atburðarásinni
Eiríkur segir lögreglu telja sig hafa skýra mynd af atburðarásinni á sunnudag en getur ekki tjáð sig um atburðina að neinu leyti.
Lögreglan var með mikinn viðbúnað þegar tilkynning barst í ljósi alvarleika málsins en böndin beindust fljótt að íbúð fjölbýlishúss steinsnar frá því þar sem slasaði maðurinn fannst. Þar var yngri maðurinn handtekinn og færður á lögreglustöð.
Hvað tengsl mannanna tveggja varðar segir Eiríkur þá þekkjast en þeir séu ekki tengdir fjölskylduböndum.
Kanna tengsl málsins við undirheima
Aðspurður segir Eiríkur þá að meðal annars sé til rannsóknar hvort atvikin tengist einhvers konar undirheimamálum eða fíkniefnaneyslu.
Lögregla lagði hald á skotvopn og segir Eiríkur að enn sé til rannsóknar hvort vopnið hafi verið notað í málinu.