Menn frá Íran og Írak sakaðir um að hafa misnotað sjö ungar stúlkur – Yngsta fórnarlambið aðeins 12 ára
Í bretlandi standa nú yfir réttarhöld yfir tveimur mönnum frá Íran og Írak, en þeir eru sakaðir um að hafa misnotað sjö stúlkur kynferðislega og beitt tælingaraðferðum til að koma sér í samband við þær. Stúlkurnar eru á aldrinum 12 til 15 ára.
Saksóknarar segja mennina hafa notað rafrettur, peninga, áfengi og fíkniefni til að lokka stúlkurnar til sín áður en þær voru beittar kynferðisofbeldi.
AuglýsingÍrakinn Bawan Harwe, 28 ára, og Íraninn Sharam Muhamadi, 20 ára, eru ákærðir fyrir samtals 21 kynferðisbrot. Þar á meðal eru nauðganir, frelsissvipting, tælingar og skipulagning ferða með það að markmiði að misnota börn kynferðislega.
Harwe hefur þegar játað að hafa nauðgað stúlku undir 13 ára aldri. Muhamadi neitar öllum ákærum á hendur sér.
Lokuðu börnunum inni og gáfu þeim fíkniefni
Samkvæmt saksóknara hófust samskipti oftast á Snapchat þar sem Harwe hafði samband við ungar stúlkur og bauð þeim rafrettur, peninga eða áfengi ef þær hittu hann.
Saksóknarinn sagði að mennirnir hefðu beitt sömu aðferð í öllum tilfellum.
„Þessum ungu stúlkum var í raun mútað og svo niðurlægðar kynferðislega. Þegar það dugði ekki var þeim ógnað og svo beittar líkamlegu valdi,“ sagði saksóknari málsins.
Meðal annars er því lýst að stúlkunum hafi verið gefið kannabis, kókaín og áfengi áður en þær voru misnotaðar. Lýsingarnar voru hrottafengnar, en einni stúlkunni, 14 ára, blæddi svo mikið eftir eina nauðgunina að hún þurfti á spítala. Annarri var reglulega gefið svo mikið áfengi að hún missti meðvitund áður en mennirnir nauðguðu henni.
Í einu tilfelli hafi Harwe haldið stúlku í gíslingu og aðeins sleppt henni eftir að vinkona hennar samþykkti að stunda með honum kynlíf.
Notuðu Snapchat til að finna fórnarlömb
Fyrir dómi kom fram að Harwe hafi auglýst fríar rafrettur á Snapchat til að lokka að sér börn. Ein stúlkan sagði að þegar hún upplýsti hann um að hún væri aðeins 15 ára hafi hann svarað:
„Það er í lagi, aldur skiptir ekki máli.“
Saksóknarinn sagði jafnframt að Harwe hefði látið sumar stúlknanna bera húfur sem huldu andlit þeirra þegar þær voru keyrðar til Doncaster svo enginn sæi þær með honum.
Búist er við að réttarhöldin klárist á næstu vikum.
Auglýsing