Allt flug Icelandair í morgun var fellt niður vegna verkfallsins.
Til stóð að fljúga tvisvar milli Akureyrar og Reykjavíkur. Ekkert varð af þeim flugferðum frekar en öðrum.
Tómlegt var um að litast á Akureyrarflugvelli þegar Siguróli Magni Sigurðsson fréttamaður var þar á áttunda tímanum í morgun.
Icelandair hefur boðið flugfarþegum sem komu á Keflavíkurflugvöll rútuferðir til Reykjavíkur. Fólk er beðið um að halda fyrir í röðum meðan verið er að skipuleggja ferðirnar.
Nokkur fjöldi farþega kom á flugvöllinn og var ekki viss um hvaða áhrif verkfallið hefði.
„Við höfum ekkert verið boðaðir til viðræðna síðan um miðjan dag í gær,“ segir Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, sem er jafnframt formaður samninganefndar félagsins.
Óskar segir að menn hafi kastað hlutum sín á milli í gær til að leita leiða til að liðka fyrir lausn kjaradeilunnar. Hann segist hafa rætt við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair, í síma í gærkvöldi.
„Það stendur ekki á okkur,“ segir Óskar um lausn kjaradeilunnar.
Fjöldi fólks er á Keflavíkurflugvelli, þar á meðal farþegar sem ætluðu að fljúga af landi brott með Icelandair í morgun. Þar er líka Ragnar Visage ljósmyndari sem tók þessar myndir í morgun
Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir fréttamaður og Víðir Hólm Ólafsson tökumaður mættu í Leifstöð klukkan sex. Hún segir að flugfarþegum hafi fjölgað mikið síðan þá en fólk sé samt rólegt að bíða eftir upplýsingum.
Enginn starfsmaður er við innritunarborðin á vegum Icelandair, og þar hefur mjög löng biðröð myndast af Icelandair flugfarþegum. Hólmfríður segir að viðmælendur hennar sýni þessu skilning, og vissu klárlega hvað var í vændum. Flugfarþegar bíði frekari upplýsinga.
Í kallkerfinu er verið að bjóða rútuferðir ókeypis í bæinn.
Góðan dag og velkomin í fréttavakt um verkfall flugvirkja hjá Icelandair og þau áhrif sem það hefur á millilandaflug og innanlandsflug Icelandair.
Flugfélagið felldi í gærkvöld niður allar flugferðir sem áttu að hefjast að morgni. Reynt verður að koma fólki á áfangastað með öðrum flugfélögum.
Hér flytjum við fréttir af því sem er að gerast á flugvöllum landsins og því hvort gangur komist á viðræður Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair um samning.