Tveir karlmenn, annar íslenskur og hinn erlendur, eru í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti karlmanns í Kópavogi í gær. Prestur í bænum segir mörgum líða illa vegna þessa og hvetur fólk til að leita sér hjálpar.
Karlmaðurinn sem lést var erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri og bjó í Vallargerði á Kársnesi. Annar mannanna var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald, til 17. ágúst, hinn til 21. ágúst.
Vísir greinir frá því að annar mannanna sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald, sá íslenski, hafi kært úrskurðinn og segist eingöngu hafa verið bílstjóri.
Nágrannar segjast hafa séð tvo dökkklædda menn stíga út úr bíl í götunni og fara að húsinu.
Fleiri voru handteknir vegna málsins, meðal annars í lögregluaðgerð í Gnoðarvogi í Reykjavík, en ekki liggur fyrir hvort farið hafi verið fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum þeirra.
Sigurður Arnarson, sóknarprestur í Kópavogskirkju, segir að aðstæður sem þessar reyni á samfélagið. Sjálfur varð hann vitni að hluta atburðarásarinnar í gær. „Kársnesingar hafa leitað til safnaðarins í gær og í dag. Svo sannarlega og fleiri,“ segir Sigurður.
Mikilvægt að leita aðstoðar
Hvað liggur fólki á hjarta? „Þeim sem komu að þessu og þetta snertir með einhverjum hætti, þeim líður bara mjög illa.“
Sigurður segir mikilvægt að leita sér aðstoðar í aðstæðum sem þessum. „Hvort sem það er í kirkjunni, Rauða krossinum eða þeim samtökum sem veita þessa hjálp.“
Varð vitni að hluta atburðarásarinnar
Þarna leikur grunur á og lögregla rannsakar voveiflegt mannslát - vekur það fólki ugg? „Jú, og ég tala bara út frá sjálfum mér,“ segir Sigurður. „Ég bý ekkert langt frá og var úti í garði í gær og varð vitni að hluta af þessu.“
Þannig að maður er auðvitað mjög skekinn, við erum það. Svo sannarlega og þess vegna er mjög áríðandi að við höldum vel utan um hvort annað, hlúum að hvort öðru og sýnum hvoru öðru kærleika og virðingu.
Lögregla veitir litlar upplýsingar um gang mála og ýmsar sögusagnir hafa verið á kreiki. Sigurður segir ekki hægt að segja til um hvort það geti aukið á vanlíðan fólks „Það er alltaf þessi vandrataði meðalvegur og ég veit ekki betur en að allir séu að reyna að gera sitt besta í þessum flóknu og vægast sagt hræðilegu aðstæðum.“