Mál málanna í dag hér á landi og víðar á norðurhveli jarðar er sólmyrkvinn og þá sérstaklega almyrkvi á sólu sem átti að sjást í skamma stund, frá vestasta hluta landsins, skömmu fyrir klukkan 18 í kvöld. Vegna veðurfarsins sást þó ekki mikið til hans í gegnum skýin nema þá helst á Vestfjörðum. Eins og svo oft þegar stórir viðburðir eiga sér stað, nú á tímum, hafa margir tjáð sig um almyrkvann á samfélagsmiðlum. Hjá mörgum sem fylgdust með almyrkvanum má greina mikla ánægju með upplifunina þrátt fyrir að skýin hafi verið fyrir.
Margir hæstánægðir eftir almyrkvann þrátt fyrir skýjafarið en þó ekki allir - „Þetta er eins og venjulegt myrkur“