Netverji birti mynd af mygluðum jarðaberjum sem voru gefins í verslun Krónunnar í Hamraborg um helgina, í svari Krónunnar um þetta mál eru viðskiptavinir beðnir velvirðingar, þessum ávöxtum hafi átt að farga en vegna mannlegra mistaka hafi þeim verið stillt upp sem gefins.„Misstuð þið af þessu kostaboði um helgina, frítt við útgang Krónunnar í Hamraborg?!,“ spyr málshefjandi í hópnum Vertu á verði á Facebook. Eru einnig sett spurningamerki við hvort jarðaberin hafi verið urðuð á lífrænan hátt.
Mannleg mistök að mygluðu jarðarberin voru gefins í Krónunni: „Misstuð þið af þessu kostaboði um helgina?“