Þetta kemur fram í staðarmiðlum en meðal annars er greint frá því í umfjöllun Sky News Australia að hann hafi verið fluttur með þyrlu á sjúkrahús.
Þar segir einnig að talið sé að maðurinn, sem er 31 árs, hafi verið við spjótveiðar um fimmtíu metra frá landi við Coal Point á Bruny-eyju, sem er við suðurhluta Tasmaníu nærri borginni Hobart, þegar ráðist var á hann.
Hann hafi ekki hlotið áverka á neðri hluta framhandleggs en þeir séu ekki svo alvarlegir að hann sé í lífshættu en maðurinn er sagður hafa komist í land með aðstoð tveggja annarra kafara.
Lögreglan telur að hann hafi verið bitinn af tveggja metra löngum hákarli er fram kemur í frétt Sky News Australia.