Einn keppandi átti að sitja ofan í kerrunni en hinir sem ýttu voru með bundið fyrir augun. Alls kyns hindranir voru á vegi þeirra og því var verkefnið erfitt. Og ofan á allt máttu keppendur hvorki tala saman á íslensku né ensku.
Skipt var í tvö lið en í öðru þeirra voru þau Edda Björgvins, Snjólaug Lúðvíks og Villi Netó. Sveppi og Sigurður Þór voru saman í hinu liðinu.
Hér að neðan má sjá hvernig til tókst en hægt er að sjá alla þættina af Taskmaster inni á Sýn+.