Fyrrum sigurvegari raunveruleikaþáttanna Love Island telur sig vita hvaða breytingar þarf að gera til að þættirnir verði aftur jafn dramatískir og þeir urðu frægir fyrir. Cara De La Hoyde sagði í viðtali við Zingo Bingo að lausnin felist í að gera senurnar „dónalegri“ og koma þurfi aftur á fót reykherberginu.
De La Hoyde var 25 ára þegar hún sigraði aðra þáttaröðina, þar kynntist hún eiginmanni sínum Nathan Massey. Hún telur best að þátttakendur verði eldri en 21 árs. „Love Island er risastórt verkefni og mikið sem fylgir í kjölfarið. Svo er það líka skrítið að vera 36 ára og horfa á fullt af tvítugu fólki!,“ sagði hún.
Það hafa þó ekki margir verið undir 21 árs, síðast árið 2023 þegar hin 19 ára gamla Amber Wise tók þátt með hinum tvítuga Kodie Murphy.
De Le Hoyde á þó ekki von á að þáttastjórnendur taki mark á henni. „Þeir eru að reyna að gera þætti sem vinna BAFTA-verðlaun. En ég er að segja ykkur, ef þið komið með þetta aftur þá mun sko dramað koma!“
Þáttaröðin sem hún og Massey sigruðu árið 2016 er þekktust fyrir að vera hvað dónalegust en skemmst er að minnast þegar Emma Woodham stundaði kynlíf með Terry Walsh fyrir framan alþjóð.
De Le Hoyde segir að þjóðfélagið hafi breyst síðan þá. „Ég og Nathan höfum verið heppin með netdólgana, það var ekki svo mikið áreiti. Við erum bæði mjög jarðbundin og látum ekki neikvæðnina trufla okkur.“