Skellt var í lás á þremur skemmtistöðum á höfuðborgarsvæðinu í sameiginlegum aðgerðum lögreglunnar og Skattsins sem beindust meðal annars að öryggisfyrirtæki sem starfar á skemmtistöðunum sem eru staðsettir annars vegar í Reykjavík og hins vegar í Hafnarfirði. DV hefur heimildir fyrir því að staðirnir í Reykjavík séu annars vegar Exit á Austurstræti og hins vegar Gaukurinn á Tryggvagötu.
Öryggisþjónustan sem um ræðir var ekki með starfsleyfi en í tilkynningu lögreglu var rekstur þjónustunnar stöðvaður og hafi því tveir skemmtistaðir þurft að stöðva rekstur sinn þar sem engir dyraverðir voru þá til staðar og ekki tókst að útvega nýja. Þriðja staðnum var lokað að beiðni Skattsins. Lögregla mun samkvæmt tilkynningu vera með áframhaldandi eftirlit og aðgerðir á næstu dögum og vikum.