Loftslagsumfjöllun dregst saman – sérfræðiblaðamenn missa störf
Athyglin færist – ný átakamál taka yfir
Samkvæmt samantekt frá University of Colorado Boulder hefur alþjóðleg umfjöllun um loftslagsmál minnkað um 14 prósent á síðasta ári miðað við árið á undan. Þá sýna gögn að umfjöllunin náði hámarki árið 2021, þegar sænski loftslagsaðgerðarsinninn Greta Thunberg var hvað mest áberandi á alþjóðavettvangi.
Undanfarin misseri hefur Greta Thunberg hins vegar í auknum mæli látið til sín taka í öðrum pólitískum málum, meðal annars með stuðningi við málstað Palestínumanna í tengslum við átökin á Gaza. Sú þróun hefur vakið athygli og gagnrýni, og sumir telja að fókusinn hafi færst frá loftslagsmálum yfir í víðari pólitíska umræðu.
Á sama tíma hefur umfang loftslagsfrétta dregist saman um allt að 38 prósent frá toppnum árið 2021. Athygli fjölmiðla hefur í auknum mæli beinst að öðrum alþjóðamálum, þar á meðal stríðsátökum og efnahagsmálum.
Á meðan loftslagsumfjöllun stóð sem hæst var gjarnan reynt að tengja loftslagsbreytingar við fjölbreytt viðfangsefni daglegs lífs. Til dæmis vakti athygli frétt BBC þar sem fjallað var um möguleg áhrif loftslagsbreytinga á bragðgæði bjórs, með vísan til rannsókna á áhrifum veðurfars á hráefni.