Færeyskar vinnslur greiða þrefalt hærra verð fyrir loðnu en íslenskar. Þingmaður Flokks fólksins segir ljóst að ríki og sveitarfélög gjaldi undirverðlagninguna dýru verði.
Í svari atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn Eydísar Ásbjörnsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, kemur fram að meðalverð á landaðri loðnu til frystingar hafi verið 80,64 krónur á kílóið á síðasta fiskveiðiári. Lægsta verð nam 67,64 krónum en hæsta verð 89,48 krónum.
Meðalverð á sömu afurð í Færeyjum nam hins vegar 250 krónum samkvæmt upplýsingum frá Færeyjum.
Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar og þingmaður Flokks fólksins, segir þessar upplýsingar sýni að víð víða sé pottur brotinn við verðlagninguna hér á landi. „Þetta þýðir að hlutur sjómanna og hafnargjöld hefðu átt að vera þrefalt hærri á síðustu vertíð. Það er alveg ljóst að þessi undir verðlagning hefur bein áhrif á sjóði ríkis og sveitarfélaga og mun hafa veruleg áhrif á veiðigjöld næsta árs.”
Fullyrðir þingmaðurinn að einhver milliverðlagning eigi sér stað á helstu útflutningsafurð þjóðarinnar og það þurfi að rannsaka. „Það má ganga að því sem vísu að afurðaverð Íslendinga og Færeyinga sé svipað og því þarf að rannsaka hvar hagnaður á af undirverðlagningu á vandaðri loðnu er losaður. Er það í vinnslunni eða er það í sölufyrirtækjum, jafnvel á erlendri grundu?”