Einn hlaut stungusár og annar fékk sár á hendi eftir að til áfloga kom við Valhallarbraut í Reykjanesbæ á þriðja tímanum í nótt. Þrír voru handteknir og hyggst lögregla fara fram á gæsluvarðhald síðar í dag.
Lögreglu var tilkynnt um slagsmál utandyra við Valhallarbraut um 20 mínútur í þrjú í nótt. Þar var fjöldi fólks saman kominn þegar lögreglu bar að. Einn maður var þá með stungusár og annar með sár á hendi.
Sá sem var stunginn var fluttur á spítala. Hann er enn þar en er ekki í lífshættu.
Til áfloganna kom við úrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Bjarney S. Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn í rannsóknardeild og almennri deild, segir að það virðist hafa komið til ágreinings milli íbúa. Einn var stunginn og ráðist var á annan sem særðist á hendi.
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út til aðstoðar lögreglunni á Suðurnesjum. Hún hjálpaði til við leit að þeim sem eru grunaðir um árásina.
Þrír voru handteknir og bíða þeir þess að vera yfirheyrðir. Bjarney segir að yfirheyrslur hefjist klukkan eitt. Meðal annars þarf að útvega túlka áður en þær hefjast.
Líklegt er að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir tveimur þeirra sem voru handteknir. Það skýrist þegar líður á daginn.
Þeir sem eiga í hlut eru karlmenn á fertugsaldri.