Það að hleypa dýrum úr búrum leysir engan vanda, segir Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands. Í loðdýra- svína- og alifuglahaldi eru kerfisbundin vandamál, það að hleypa út úr einu búi breytir því ekki, segir hún. Hún var gestur í þættinum Framundan á Rás 2 í morgun.
Talið er að mörg þúsund minkar hafi sloppið úr Dalsbúi í Mosfellsdal í gær. Málið er til rannsóknar lögreglu og grunur er um að brotist hafi verið inn og dýrunum sleppt viljandi.
Dýraverndarsamband Íslands sættir sig ekki við þessa nálgun í dýravelferðaraðgerðum. Linda segist geta fullyrt að íslensk dýravelferðarsamtök vinni málefnalega.
„Ef um dýravelferðaraðgerð er að ræða í þessu tilviki þá er það bara til að skaða dýrin sem um ræðir, bæði dýrin í umhverfinu og þessi tilteknu dýr og að sjálfsögðu málstað dýravelferðar,“ segir Linda Karen Gunnarsdóttir.