Leyfa framkvæmdir í trássi við eigendur - MBL.IS
📅 2026-07-07 12:09:00
👁️ 0 lesið
Ekki hefur verið orðið við kröfu Guðmundar Kristinssonar, eiganda Sóleyjarbakka sem land á að Stóru-Laxá í Hreppum, um aukaaðalfund í veiðideild Stóru-Laxár en í Morgunblaðinu í gær var greint frá kröfu hans um að til fundarins yrði boðað eigi síðar en 15. ágúst nk. Þetta segir Guðmundur við Morgunblaðið.
Hann krafðist þess með bréfi að til fundarins yrði boðað en Guðmundur hefur margt að athuga við framkomu fyrirsvarsmanns Bergsnasar ehf. sem er með veiðirétt í Stóru-Laxá á leigu. Krefst hann þess jafnframt að leigusamningnum verði sagt upp eða honum verði rift.
Ýmislegt fleira er nefnt til sögunnar, þ.m.t. yfirgangur gagnvart landeigendum og leyfislaus vegagerð í landi Sóleyjarbakka sem og niðurrif á varnargörðum í landi hans. T.a.m. hefur eigandi Eiríksbakka, sem er jörð neðst við Stóru-Laxá að vestanverðu en land hennar liggur að Iðu, kvartað yfir framferði leigutakans og skemmdum sem hann hefur valdið á landi jarðarinnar.
Morgunblaðið hafði samband við Kristján Skarphéðinsson eiganda Eiríksbakka vegna þessa en hann baðst undan viðtali vegna málsins.
Undrast yfirlýsinguna
Vegna umkvartana landeigenda yfir framferði leigutakans sendi stjórn veiðideildar Stóru-Laxár frá sér yfirlýsingu 2. júlí sl. þar sem segir að fyrirsvarsmaður Bergsnasar, leigutaka Stóru-Laxár, „hafi fullt umboð og stuðning frá stjórn Stóru-Laxárdeildarinnar til lagfæringar á vegum meðfram bökkum árinnar“. Hann sjái um viðhald vega, bakkavarnir, eftirlit með vegum og veiði og leiðsögn með veiðimönnum.
„Hann notar til þess farartæki af ýmsum gerðum, gröfu til lagfæringar á vegum, fjórhjól og jeppa við veiðieftirlit og leiðsögn með veiðimönnum ásamt sínu starfsfólki,“ segir í yfirlýsingu stjórnarinnar.
Aðilar málsins undrast þessa yfirlýsingu og furða sig á að stjórn veiðideildar Stóru-Laxár skuli telja sig hafa umboð til þess að heimila leigutakanum að framkvæma „hervirki“ á landareignum þeirra eigin félagsmanna að þeim forspurðum og jafnvel gegn yfirlýstu banni þeirra sjálfra, eins og í tilfellum Sóleyjarbakka og Eiríksbakka.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.