Árásin hefur flækt friðarviðræður Íran og Bandaríkjanna en Trump fullyrðir að áfram sé stefnt að því að skrifa undir samkomulag í dag.
Þrír eru sagðir látnir og fimmtán særðir í úthverfum Beirút, höfuðborgar Líbanon, eftir árás Ísraels sem Bandaríkjaforseti segir hafa komið klukkutíma áður en til stóð að undirrita friðarsamkomulag. Þetta kemur fram í frétt Axios.
Trump er nú sagður keppast við að bjarga viðræðunum sem voru settar í uppnám með árás Ísraels, að sögn fulltrúa Íran. Íran hefur nú hótað hefndum.
Verði ekki liðið
Ritari æðstu öryggisstofnunar Íran hefur sagt að viðbrögð þeirra við árás Ísraels á suðurhluta Beirút „séu yfirvofandi“.
Í yfirlýsingu sem íranskir fjölmiðlar birta kallar Mohammad Bagher Zolghadr, fulltrúi þjóðaröryggisráðs landsins, Líbanon „lífæð“ Íran og segir að „brot á rauðum línum Íslamska lýðveldisins verði ekki liðin“. BBC greinir frá þessu.
Íran hefur ítrekað haldið því fram að hvers kyns samningur við Bandaríkin verði einnig að fela í sér endalok stríðsins í Líbanon. Á sama tíma hafa yfirvöld í Ísrael sagt þetta aðskilin átök og vilja halda áfram árásum á Hezbollah sem nýtur stuðnings Íran.
Bandaríkin beri einnig ábyrgð á árásinni
Íran hefur sagt í kjölfar árásar Ísraels á Beirút að Bandaríkin beri „beina ábyrgð“ á þeim „glæpum“ sem Ísrael fremji.
Utanríkisráðuneyti Íran segir í yfirlýsingu að það „fordæmi harðlega“ árásina, sem sé „augljóst brot á fullveldi Líbanons“.
Það bætir við að árásin sé „gróft brot“ á vopnahléssamkomulaginu milli Írans og Bandaríkjanna, að því er fram kemur í umfjöllun BBC.
Bandaríkin eru sögð bera beina ábyrgð á „vopnahlésbrotum“ Ísraels og utanríkisráðuneyti Íran „ítrekar að það er staðráðið í að grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana til að nýta rétt sinn til lögmætrar sjálfsvarnar“.
Ísrael hefur sagt að árásin hafi beinst að stjórnstöð Hezbollah í líbönsku höfuðborginni.
Trump í áfalli
Trump sagðist hafa orðið fyrir áfalli þegar ráðgjafar hans hringdu til að upplýsa hann um árás Ísraels í Beirút og hann hafi verið ævareiður út í forsætisráðherra Ísraels, að sögn Axios.
„Þetta er svo slæmt – ég trúði þessu ekki. Klukkutíma áður en við áttum að undirrita samninginn.“ Trump tekur undir með Ísrael að Hezbollah í Líbanon hafi fyrst ráðist á Ísrael en lagði áherslu á að sú árás hefði ekki valdið neinum skemmdum eða orðið neinum að bana.
„Þetta hristi upp í hlutunum. Þetta seinkaði undirrituninni um nokkra klukkutíma. Hún átti að vera núna. Nú er hún áætluð eftir nokkra klukkutíma,“ sagði Trump í samtali við fréttamann Axios.
Fréttin hefur verið uppfærð.