Í Lögbirtingablaðinu er birt stefna þar sem krafist er ógildingar á skuldabréfi þar sem frumrit þess sé glatað. Það væri kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að skuldabréfið hljóðar upp á 133 milljónir króna og er með 42,5 prósent vöxtum á ársgrundvelli, sem verður að teljast ansi hátt, og raunar enn hærri dráttarvöxtum. Bréfið er í vanskilum og er tryggt með veðrétti í nokkrum fjölda fasteigna sem eigandi skuldabréfsins hefur krafist nauðungaruppboðs á.
Leita dýrs skuldabréfs með svimandi háum vöxtum - Fjöldi fasteigna í eigu umdeilds athafnamanns undir