Silungaveiði í netum við Skjálfandaflóa er bæði tímaskekkja og skaðleg náttúrunni, að mati forsvarsmanna veiðifélaga á svæðinu. Í netunum drepast laxar sem stangveiðimönnum ber að sleppa.
Jón Helgi Björnsson er líffræðingur auk þess að vera formaður Veiðifélags Laxár í Aðaldal og Landssambands veiðimanna. Hann tók myndbönd í Gvendarbási, fjöru við Skjálfanda skammt frá Húsavík, þar sem sjást dauðir laxar og sjófuglar í silunganetum.
Ekki fjarri rennur Laxá til sjávar með nokkra af vinsælustu veiðistöðum landsins.
Veiðifélögin hafa lengi verið gagnrýnin á netaveiðarnar, sem eiga sér langa sögu en eru orðnar sjaldséðari í dag. Jón segir sveitarfélagið og Fiskistofu hafa sýnt athugasemdum þeirra lítinn áhuga í gegnum árin, en eftir að myndböndin fóru á flug ákvað Fiskistofa að bregðast við.
„Þeir höfðu samband við þá sem höfðu þessi veiðileyfi og buðust til að fara með þeim í vitjun, koma með þeim og taka netin með þeim og hjálpa þeim við þetta og þá brá svo undarlega við að þeir eru allir hættir netaveiðum þetta árið,“ segir Jón Helgi.
Þegar fréttastofa fór þangað í dag voru því netin öll á bak og burt.
Veiðifélögin telja það ljóst að þótt yfirlýst markmið sé að veiða silung geti veiðst tugir laxa í hvert silunganet yfir sumarið.
„Þannig fer um flesta laxa sem fara í svona net, þeir kafna, þeir geta ekki andað. Og þetta er nú óttalega vondur matur, sjálfdauður fiskur.“
Hann bætir við að sjóbleikjustofninn í Skjálfanda þoli litla sem enga veiði, hann sé afskaplega lítill. En mestar áhyggjur hafi þeir af þessum aukaveiðum á laxi.
„Stofninn er í það mikilli lægð og hefur verið lengi, þá höfum við talið að þetta væri ekki hlutur sem menn ættu að vera í.“
Þótt einhverjir hafi áhyggjur af áhrifum veiðanna á fugla og fiska er ljóst að málið snýst líka um peninga.
Sveitarfélagið fær inn tekjur vegna seldra netaveiðileyfa, um 130 þúsund krónur á ári eftir því sem fréttastofa kemst næst.
Einn dagur í Laxá á eina stöng getur hins vegar kostað um 50 til 100 þúsund, tekjurnar þar eru því margfalt meiri og þeim mun meira í húfi að stofninn standi vel og líf sé í ánni fyrir þær þúsundir veiðimanna sem þangað koma.