Þórir Jóhann Helgason, landsliðsmaður í fótbolta, mun yfirgefa ítalska félagið Lecce eftir leiktíðina en hann hefur verið hjá félaginu frá árinu 2021.
Mun hann færa sig yfir til Venezia sem vann B-deildina á nýliðinni leiktíð og leikur því í deild þeirra bestu eftir sumarfrí.
Triventogoal greinir frá þessu í dag en tekur einnig fram að óljóst er hvort Þórir muni leika með Venezia á komandi tímabili eða hvort félagið muni lána hann annað.