Landskjörstjórn hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem leiðrétt er rangfærsla á forsíðu Morgunblaðsins í gær, mánudaginn 10. Ágúst. Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, skrifar undir yfirlýsinguna.„Í gær, 10. ágúst, birti Morgunblaðið frétt á forsíðu sinni og á mbl.is undir fyrirsögninni „Orðalag um óvissa kjósendur horfið af upplýsingavef landskjörstjórnar“ þar sem því var haldið fram að orðalagi á upplýsingavef landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðsluna hafi verið breytt án þess að breytingarinnar væri getið.“
Landskjörstjórn leiðréttir rangfærslur Morgunblaðsins