Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, í kvöld, handtóku skipstjórann og tóku yfir stjórn skipsins. Skipið verður fært til hafnar í Reykjavík.
Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að áhöfn hvalveiðiskipsins Hvals 9 hafi óskað eftir aðstoð fyrr í kvöld þar sem hún taldi öryggi sínu ógnað. Jafnframt hafi skipstjóri Bandero ekki hlýtt fyrirmælum Landhelgisgæslunnar.
Fyrr í dag greindu Paul Watson-samtökin frá því að Bandero hefði siglt utan í Hval 9 og sögðu hvalveiðiskipið hafa hætt veiðum og snúið til hafnar. Landhelgisgæslan staðfesti þá að Bandero hefði nálgast Hval 9 og reynt að trufla för þess, en hafði ekki staðfest frásögn samtakanna af árekstri skipanna.
Samkvæmt tilkynningu Landhelgisgæslunnar fékk stjórnstöð hennar tilkynningu um klukkan sex í kvöld um að Bandero hefði siglt inn fyrir 12 sjómílna landhelgi Íslands og stefndi í átt að Hvali 9. Varðstjórar skipuðu áhöfn Bandero að yfirgefa íslenska landhelgi en við því var ekki orðið.
Skipstjóri Bandero varð ekki fyrir fyrirmælum Landhelgisgæslunnar
Þyrla Landhelgisgæslunnar, sem var á eftirlitsflugi, var þegar send á vettvang og ítrekaði fyrirmælin án árangurs. Þá var varðskipið Freyja kallað út og skipstjóra Bandero fyrirskipað að stöðva vélar skipsins. Samkvæmt Landhelgisgæslunni varð hann heldur ekki við þeim fyrirmælum.
Sérsveit ríkislögreglustjóra var þá flutt með þyrlu um borð í varðskipið Freyju og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar hélt á vettvang á aðgerðabátum. Um miðnættið fóru sveitirnar um borð í Bandero, handtóku skipstjórann og tóku yfir stjórn skipsins.
Bandero verður flutt til Sundahafnar í Reykjavík síðar í kvöld. Landhelgisgæslan segir að aðgerðin hafi verið unnin í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra og að dómsmálaráðuneytið hafi verið upplýst um framvindu málsins á öllum stigum.