Landhelgisgæslan telur heimilt að miðla staðsetningu Banderos, skips Paul Watson-samtakanna, í ljósi þeirrar ógnar sem hvalveiðiskipum stafar af aðgerðum þeirra.
Í svari Landhelgisgæslunnar við fyrirspurn fréttastofu segir að tilgangurinn sé að auka öryggi áhafna hvalveiðiskipa og að tryggja að Gæslan geti sinnt öryggis- og löggæsluhlutverki sínu.
„Hvalveiðar eru nú heimilar á grundvelli íslenskra laga og reglna. Hótanir um að stöðva slíka starfsemi með aðgerðum á sjó geta varðað öryggi skipa og áhafna og falla því undir þau atriði sem Landhelgisgæslunni ber að hafa eftirlit með og bregðast við eftir atvikum.“
Skipið væri sýnilegt undir eðlilegum kringumstæðum
Robert Read, framkvæmdastjóri Paul Watson-samtakanna, sagðist í gær gruna Landhelgisgæsluna um að gefa Hval hf. upp staðsetningar Banderos. Hann sagði að skip Hvals hefðu forðast að vera í grennd við Bandero.
Skipverjar hafa sagt sjálfvirkan staðsetningarbúnað á Bandero bilaðan. Samkvæmt alþjóðlegum samþykktum og íslenskum lögum er skylt að hafa kveikt á honum nema sérstakar undanþágur eigi við.
„Ef skipið gæfi upp staðsetningu sína með hefðbundnum hætti, eins og skylt er, væri það öllum sýnilegt,“ segir í svari Landhelgisgæslunnar.
Samtök Pauls Watsons hafa heitið hverjum þeim sem getur gefið rauntímaupplýsingar um staðsetningu hvalbátanna 250 þúsund krónum.
Landhelgisgæslan fylgist áfram með Bandero og bregst við ef þörf krefur.