Í fréttatilkynningu þess efnis segir að ráðgjöfin byggi á úttektum Vísindanefndar NAMMCO og Alþjóðahvalveiðiráðsins. Þetta sé ráðgjöf til eins árs og verði uppfærð síðar á árinu fyrir næstu ár, þegar niðurstöður nýjustu talninga hafa verið samþykktar af úttektarhópum og nefndum innan NAMMCO. Þar sem niðurstöður talninganna frá 2024 hafi ekki verið samþykktar af nefndum innan NAMMCO hafi þær ekki verið notaðar í útreikning aflamarks.Vegna þess sé ráðgjöfin lækkuð um 20 prósent í varúðarskyni. Vegna mikillar óvissu í síðustu talningu megi ekki búast við miklum breytingum þegar hún verður tekin inn í útreikning aflamarks.Ráðgjöf um veiðar á langreyðum og hrefnu megi finna hér fyrir hrefnu og hér fyrir langreyði.
Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega - Vísir