Brotið var ítrekað á réttindum Tómasar Guðbjartssonar skurðlæknis þegar honum var veitt áminning í starfi á Landspítala og vinnuframlag hans afþakkað. Þetta er niðurstaða umboðsmanns Alþingis í áliti sem fréttastofa hefur undir höndum. Rætt verður við formann Læknafélags Íslands í fréttatímanum.
Þá verður rætt við deildarstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem segir það miður að horfa upp á mynddreifingu af ofbeldisverkum á samfélagsmiðlum. Ungmenni sem beita ofbeldi haldi gjarnan til á sömu slóðum í svipuðum hópum og sitji jafnvel fyrir fólki. Nýlegt myndband af grófu ofbeldi sem hópur ungmenna beitir feðga er í dreifingu á samfélagsmiðlum. Fréttastofan hefur myndefnið undir höndum.
Margir fagna eflaust fréttum um að veitingastaðurinn Burger King sé að snúa aftur. Rætt verður við framkvæmdastjóra N1 um málið, en hann segir virkilega ánægjulegt að taka þátt í því að koma veitingakeðjunni aftur inn í flóruna hérlendis.
Einnig heyrum við í Stjörnu-Sævari sem hvetur fólk til að líta til morgunhiminins, sem sé ofur fagur þessi dægrin og plánetur að skarta sínu fegursta. Í austurátt megi sjá Venus mjög skæra og í suðri eru Júpíter og Mars mjög nálægt hvor öðrum. Í dag er síðan fullt tungl og einna næst jörðu, en stundum er þá talað um ofurmána. Sævar Helgi Bragason skýrir fyrirbærin betur í fréttatímanum.
Hádegisfréttir og stútfullur sportpakki á Bylgjunni á slaginu tólf. Umsjónarmaður er Telma L. Tómasson.