Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Það er af sem áður var. Kvenréttindafélagið vill afmá jafnrétti íþróttaiðkanda og réttláta keppni fyrir stúlkur og konur.
Konur, í alvöru er þetta það sem þið styðjið?
Að karlmaður, sem skilgreinir sig konu, fái að keppa í kvennaíþróttum.
Er það þess vegna sem þið eruð meðlimir Kvenréttindafélagsins? Til að karlar fái sínu framgengt.
Nú sitja tveir karlmenn, sem skilgreina sig sem konu, í stjórn og varastjórn Kvenréttindafélagsins. Mörgum þætti það öfugsnúið að karlmenn, þó þeir skilgreini sig konu, fái allt í einu ítök í félagsskap sem konur hafa átt frá örófi alda. En menn kalla þetta nútímann.
Karlar geta aldrei verið konur, Konur geta aldrei verið karlar, líffræðin er einföld.
Paradísin brestur
Ísland hefur haft orð á sér fyrir að vera jafnréttisparadís. Nú brestur eitthvað. Þegar karlar, sem segjast konur, fá aðgang að íþróttum kvenna þá er eitthvað mikið að. Sama með einkarými kvenna.
Líkamlegir burðir karlmanna eru meiri en kvenna, þol, styrkur og vöðvastærð. Kona hefur alla jafna ekkert í karlmann, sama hver íþróttin er.
Sjáið þið fyrir ykkur 80 kg. konu glíma við karlmann í sömu þyngd?
Sjáið þið fyrir ykkur að 60 kg konu keppa í tennis við 60 kg karlmann í sömu þyngd?
Fagfólk hvar eru þið?
Nú þarf fagfólk fram í dagsljósið, sjúkra- og íþróttaþjálfara sem þekkja mun á karla- og kvennalíkama og ræða málið af alvöru með hagsmuni kvenna og stúlkna að leiðarljósi.
Það er ekki hægt að trans- aðgerðasinnar, þó þeir séu í Kvenréttindafélagi Íslands, fái um það sagt að karlmenn yfirtaki kvennaíþróttir. Þetta er ekkert feimismál lengur. Þið móðgið ekki fólk með sannleikanum.
OL-nefndin hefur vísað rétta veginn.
Konur í kvennaíþróttum, er það ásættanlegt að karlmenn, með Y litning, fái aðgang að kvennaflokkum?
Liðið í Kvenréttindafélaginu hefur ekki hag stúlkna og kvenna að leiðarljósi og er ein mesta skömm í jafnréttisbaráttu karla og kvenna.
Hér má hlusta á karlmann, sem segir sig konu. Amy svarar honum í mynskeiðinu. Hann ber enga virðingu fyrir konum, vilja og líkama þeirra, það sama gerir Kvenréttindafélag Íslands.