Reiðir mótmælendur kveiktu í tjöldum sem voru notuð til að einangra sjúklinga með ebólu á spítala í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í gær. Stjórnmálamaður segir mótmælendur illa upplýsta um sjúkdóminn og ekki trúa því að hann sé raunverulegur.
Mótmælin brutust út þegar fjölskyldu manns, sem lést úr ebólu, var neitað um að fá lík hans til greftrunar. Luc Malembe Malembe, stjórnmálamaður í borginni, sagði við breska ríkisútvarpið, BBC, að mótmælendur hefðu kastað hlutum að spítalanum og að tvö sjúkratjöld, sem notuð voru til að einangra sjúklinga, hefðu brunnið til kaldra kola.
Ringulreið hafi skapast og lögreglan skotið viðvörunarskotum að mótmælendum til að dreifa hópnum. Sjúkrahúsið er nærri borginni Bunia í austurhluta landsins þar sem flest smit hafa greinst. Hermenn komu starfsfólki til varnar á meðan lögreglan náði stjórn á mótmælunum.
AFP-fréttaveitan hefur eftir starfsmanni á sjúkrahúsinu að einn hafi særst þegar mótmælandi kastaði í hann grjóti.
Maðurinn sem lést var vinsæll í samfélaginu, að sögn Jeans Claude Muk-endi, sem stjórnar viðbragðsteymi við faraldrinum. Hann segir mótmælendur hafa verið í miklu uppnámi og ekki gert sér grein fyrir alvarleika sjúkdómsins. Reuters ræddi við móður mannsins sem taldi hann hafa látist úr taugaveiki, ekki ebólu.
Malembe sagði mótmælendur ekki trúa því að ebóla væri raunverulegur sjúkdómur. „Fólk er ekki vel upplýst eða meðvitað um hvað er að gerast. Fyrir hluta íbúa, sérstaklega þá sem búa á afskekktum svæðum, er ebóla uppfinning utanaðkomandi aðila, hún er ekki til í þeirra augum.“
Yfir 130 hafa látist úr ebólu í landinu síðan faraldurinn braust út.