„Fjölbreytt en flatt,“ segir Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, stjórnmálafræðingur og ráðgjafi, um kosningabaráttu komandi sveitarstjórnarkosninga. Í Silfri kvöldsins var rýnt í sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram þann 16. maí. Gestir kvöldsins voru sammála um að kosningabaráttan í ár væri heldur kurteisleg og bæri með sér blæ fyrri kosningabaráttu.
„Fólk er ekki að æsa sig á kaffistofum landsins, eða allavega finnst manni ekki, það er margt annað í fréttum og auðvitað verða sveitastjórnarkosningar lítilfjörlegar þegar við erum með Trump í nánast fyrstu frétt hvern einasta fréttatíma,“ segir Bryndís.
Eva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði segir að þrátt fyrir kurteisi baráttunnar núna geti orðið hatrammar deilur á sveitarstjórnarstiginu.
„Sérstaklega kannski í sveitarfélögum sem eru ekki stór en það nær bara ekki alltaf upp á yfirborðið, inn til fréttastofunnar.“ Eva telur jafnvel marga upplifa sig fegna því að ekki séu mikil átök, þau geti oft reynst erfið og þungbær, í ár séu vinsemd og kurteisi í fyrirrúmi.
Forsætisráðherra áberandi
Elísabet Inga Sigurðardóttir, fréttamaður á fréttastofu Sýnar, segir að sýnileiki forsætisráðherra, Kristrúnar Frostadóttur, hafi verið áberandi í kosningabaráttunni í sveitarstjórnarkosningum, hún hafi sérstaklega verið áberandi í framsókn Samfylkingarinnar í Kópavogi.
„Hún er auðvitað pólitíkus og það er starf hennar að hafa skoðanir og koma þeim í farveg þannig að það er kannski ekki skrítið að hún taki þátt en hún er svakalega sýnileg, og jafnvel sýnilegri en aðrir frambjóðendur.“
Magnús Geir Eyjólfsson þingfréttamaður RÚV bendir á að undanfarin ár hafi Samfylkingin í Reykjavíkurborg verið í eldlínunni og öll vandamál höfuðborgarsvæðisins sögð vera upprunnin í borginni. Því sé aukin áhersla á flokkinn í Kópavogi mögulega tilraun til þess að breyta narratívinu.
„Þetta er kannski tilraun Samfylkingarinnar til þess að beina spjótunum annað, þá Kópavoginum í þessu tilfelli.“
Magnús segir að núverandi kosningabarátta minni mikið á kosningabaráttur fyrri ára
Frambjóðendur verði að standast storminn
Elísabet Inga Sigurðardóttir segir að fólk hafi í auknum mæli áhuga á mannlegum þætti frambjóðendanna, fólk sé í framboði og að sjálfsagt mál sé að þau sitji fyrir misalvarlegum spurningum.
„Þeir séu spurðir um að ríða, drepa, giftast og borða kjúklingavængi og fara í erfið atvinnuviðtöl, ég meina það fara ekki allir í framboð, þú gerir þetta ekki nema þú getir staðið af þér storminn.“
Stjórnmálaflokkar hafa verið iðnir við það að auglýsa sína frambjóðendur á samfélagsmiðlum, nálganirnar eru mismunandi og segir Eva Marín mannlega þáttinn vera þar áberandi.
„Þetta er brosandi glatt fólk mjög oft úti í náttúrunni, margir eru með hundinn sinn og dýralífið með. Það er svona verið að vekja upp jákvæðar tilfinningar hjá fólki gagnvart þessum einstaklingum.“
Hér má sjá Silfur kvöldsins í heild sinni.