Kótelettan BBQ & Music Festival hefst í kvöld með glæsilegum upphitunartónleikum á Eimskipssviðinu við Hvíta húsið á Selfossi, þar sem gestum býðst að njóta tónlistar frá nokkrum af vinsælustu tónlistarmönnum landsins. Aðgangur er ókeypis og ekkert aldurstakmark er á tónleikunum, sem fara fram frá klukkan 19:00 til 22:00.Á sviðið stíga Aron Can, Jón Jónsson ásamt hljómsveit, Koppafeiti, Slysh og Svitabandið, en Oddur Helgi verður kynnir kvöldsins og heldur utan um dagskrána.
Kótelettan hefst í kvöld með ókeypis upphitunartónleikum