Sjálfstæðisflokkurinn er nú með 31,4 prósenta fylgi í kosningaspá Vísis, sem Baldur Héðinsson stærðfræðingur gerir, eftir að hún var uppfærð með niðurstöðum úr skoðanakönnunum Maskínu og Gallup sem birtar voru í gærkvöldi.
Flokkurinn er með rúmlega ellefu prósentustiga forskot á Samfylkinguna en aðeins rúmur mánuður er frá því að flokkarnir tveir voru svo gott sem jafnir í spánni.
Allt er svo í járnum á milli Vinstrisins og Viðreisnar sem mælast með 11,1 prósents fylgi. Miðflokkurinn er skammt undan og mælist með 10,3 prósent.
Nú eru áttatíu prósent líkur á því að Framsóknarflokkurinn nái manni í borgarstjórn og 68 prósent í tilfelli Sósíalistaflokksins. Aftur á móti eru aðeins fimmtungslíkur á því að Flokkur fólksins og Píratar nái inn manni.
Uppgangur Sjálfstæðisflokksins
Sjálfstæðismenn eygja nú raunverulegan möguleika á að ná átta borgarfulltrúum. Flokkurinn byrjaði kjörtímabilið sem er að líða með sex fulltrúa og var spáð sama fjölda í fyrstu útgáfu kosningaspárinnar snemma í apríl. Síðan hafa orðið vendingar.
Bjarni Fritzson, áttundi maður á lista Sjálfstæðisflokksins, er nú með 72 prósent líkur á að komast inn í borgarstjórn. Rúmlega þriðjungslíkur eru á því að Sigrún Ásta Einarsdóttir í níunda sæti á lista flokksins komist inn.
Samfylkingin, sem hefur tapað umtalsverðu fylgi í könnunum á síðustu vikum og mánuðum, virðist vera að rétta aðeins úr kútnum. .
Stein Olav Romslo, fimmti maður á lista hennar, er nú með 75 prósent líkur á að ná kjöri en þær voru komnar niður í 66 prósent í síðustu viku. Í apríl stefndi í að Samfylkingin fengi sex menn inn. Bjarnveig Birna Bjarnadóttir í sjötta sætinu á þriðjungslíkur á að ná kjöri samkvæmt spánni.