Eftir að spáin var uppfærð með nýjustu könnun Maskínu í gær er Sjálfstæðisflokkurinn nú með 4,4 prósentustiga forskot á Samfylkinguna. Miðað við þær tölur á Albert Guðmundsson, sjöundi maður á lista sjálfstæðismanna, 64 prósent líkur á að ná kjöri. Líkurnar voru 29 prósent í byrjun mánaðar.Hildur Björnsdóttir gæti verið oddviti sjö manna borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna eftir kosningar. Hún er nú einn fjögurra fulltrúa flokksins eftir liðhlaup tveggja sjálfstæðismanna til Miðflokksins í vetur.Vísir/Einar
Á sama tíma er nú orðið tvísýnt um hvort Samfylkingin nái sjötta manninum inn í borgarstjórn. Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, sjötti maður á listanum, er nú með helmingslíkur á kjöri en þær voru 73 prósent fyrir rúmum tveimur vikum.
Viðreisn og Vinstrið líklegri en Miðflokkur eins og stendur
Sem fyrr eru horfur á því að það ráði úrslitum um hvers kyns meirihluti verður myndaður eftir kosningar hvernig atkvæði dreifast á milli Vinstrisins, Viðreisnar og Miðflokksins. Allir þrír flokkar virðast eiga tvo menn vísa og eygja möguleikann á þeim þriðja.Eins og spáin stendur núna á Stefán Pálsson, þriðji maður á lista Vinstrisins, mestar líkur á að komast inn, 63 prósent. Þorvaldur Davíð Kristjánsson, þriðji maður Viðreisnar, hefur 54 prósent líkur, en Lárus Blöndal, þriðji maður Miðflokksins, 44 prósent líkur.