Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, í samtali við fréttastofu.Farbann konunnar rann út í dag og var því tekið upp á ný nú eftir hádegi. Farbannið var framlengt á meðan málaferlar fara fram en líkt og kom fram var konan ákærð fyrir manndráp. Dóttir hjónanna var á þrítugsaldri.Þann 14. júní 2025 fundust frönsk feðgin látin á hótelherbergi á Edition-hótelinu í miðborg Reykjavíkur. Eiginkona og móðir hinna látnu játaði á vettvangi að hafa drepið þau, hefði svo ætlað að svipta sig lífi en ekki lokið við ætlunarverk sitt. Síðan þá hefur konan breytt afstöðu sinni og neitar sök.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með málið til rannsóknar og lauk henni þann 20. janúar. Héraðssaksóknari tók þá til skoðunar hvort tilefni væri til að gefa út ákæru á hendur konunni. Málið var hins vegar aftur sent til lögreglu þann 24. febrúar, sem rannsakaði málið aftur þar til í lok mars.
Vildi ekki að dóttirin yrði ein eftir
Í fyrri úrskurð héraðsdóms var aðkomu á vettvangi málsins lýst. Umræddan dag hafði starfsfólk Edition samband við lögreglu þar sem að kona hefði fallið í sturtu á herbergi hótelsins. Síðar bárust lögreglunni þær upplýsingar að konan væri með stungusár á bringu eftir hníf og var sjálf vopnuð.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Á gólfinu lægi meðvitundalaus maður og búðið væri að breiða yfir hann lak. Þegar lögreglumennirnir komu á konan að hafa setið á gólfinu og sagt lögreglunni að hún hefði drepið tvær manneskju.
Við komu á sjúkrahús sagði konan við hjúkrunarfræðing, svo lögreglumaður heyrði til, að eiginmaðurinn væri dauðvona og hún hefði ekki viljað að dóttir þeirra yrði ein eftir lifandi. Konan sagði einnig að hún hefði ætlað að svipta sig lífi með því að stinga sig í hjartað.Fjölskyldan, sem er frönsk en bjó á Írlandi, ferðaðist saman til Íslands og átti það að vera þeirra síðasta samverustund.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.