Ein kona fannst látin í bænum Lokva Rogoznica um 30 kílómetra suður af borginni Split í Króatíu í gær. Miklir skógareldar hafa geisað í Lokva Rogoznica og Omiš sem er þar nærri. Um 2.000 þurftu að yfirgefa heimili sín vegna eldanna.
The Guardian segir að 42 hafi slasast í skógareldunum, þar af eru sjö í lífshættu. Fjöldi bíla og heimilda eyðilögðust í skógareldunum og sumar byggingar eru gjöreyðilagðar.
Lokva Rogoznica er mjög þéttbýlt bæjarfélag með um 15.000 íbúa en auk þeirra voru um 12.000 ferðamenn á svæðinu þegar skógareldarnir kviknuðu.
Skógareldarnir eru einhverjir þeir verstu í sögu Króatíu.