Færsla í Facebook hópnum Fávitar í Umferðinni hefur vakið upp nokkrar deilur. Þar gagnrýnir kona fjóra unga menn sem sáust saman á einu Hopp rafmagnshlaupahjóli í Hafnarfirði.

Konan birti myndband af atvikinu og skrifaði að hún væri orðlaus yfir því að fjórir strákar væru saman á Hopp hjóli og kynnu ekki umferðarreglurnar. Í athugasemdum við færsluna kom fram að myndin hefði verið tekin í Hvömmunum í Hafnarfirði.
Viðbrögðin við færslunni voru afar ólík. Margir tóku undir gagnrýni konunnar og sögðu slíka hegðun geta skapað verulega hættu í umferðinni og slysahættu fyrir menninga ungu. Bent var á að aðeins einn einstaklingur megi vera á rafmagnshlaupahjóli í einu og að slys af þessu tagi geti haft alvarlegar afleiðingar, bæði fyrir þá sem eru á hjólinu og aðra vegfarendur.
Aðrir tóku töluvert afslappaðri afstöðu til málsins. Sumir rifjuðu upp að á árum áður hefðu margir ferðast saman á skellinöðrum og sögðu þetta minna á þann tíma. Aðrir grínuðust með að piltarnir væru að „ná sér í 75% afslátt af farinu“ eða sögðu einfaldlega að þarna væru börn að skemmta sér.