Myndskeiðið var tekið á vettvangi í Mosfellsdal í morgun þar sem enn er unnið hörðum höundum að því að fanga minka.
Enginn hefur verið kallaður í skýrslutöku vegna innbrota í tvö alidýrabú fyrr á árinu; annars vegnar í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi 12. maí og hins vegar í alifuglabú Reykjabús í Mosfellsdal 2. júní.
Þetta staðfestir Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi á lögreglustöð 4 á höfuðborgarsvæðinu, sem heldur utan um rannsókn þeirra mála ásamt rannsókn innbrotsins á loðdýrabúið Dalsbú í Mosfellsdal aðfaranótt gærdagsins.
Spurð hvort það þýði þá ekki að lögregla hafi ekkert í höndunum, sagðist Hildur ekki geta tjáð sig um yfirstandandi rannsóknir. Hún segir „ekki ólíklegt“ að öll innbrotin tengist með einhverjum hætti.
Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, sem stjórnar aðgerðum í Mosfellsdal eftir að þúsundum minka var hleypt úr búrum sínum á loðdýrabúinu Dalsbúi, segir ljóst að verknaðurinn hafi verið vel undirbúinn. Þeir sem að honum stóðu hafi reynt að koma í veg fyrir að eigandi búsins gæti náð dýrunum aftur.
„Ég hef heyrt að þessi skaðvaldar þarna klipptu á háfana sem eru notaðir til að grípa einn og einn sem eru innan girðingar og það er allt gert til að tefja þetta, það voru gildrur þarna sem voru uppspenntar, það var búið að eyðileggja þær eða koma þeim úr notkun,“ segir Hilmar.
Íbúar í Mosfellsdal eru beðnir um að láta börn ekki sofa úti í barnavögnum í næsta nágrenni við minkabúið næstu daga. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Mosfellsbæjar. Íbúar sem eru fjær í dalnum hugi að því að hafa net yfir vögnunum.
Í tilkynningunni segir að aðgerðir í Mosfellsdal hafi gengið vel síðasta sólarhringinn.
Ábendingar um minka frá íbúum Mosfellsbæjar hafi verið mjög fáar.
„Eins og staðan er núna hefur ekki verið fangaður minkur í þéttbýli í Mosfellsbæ og því ekki talin ástæða til að halda gæludýrum inni í öðrum hverfum í Mosfellsbæ. Gæludýraeigendur eru beðnir um að gæta fyllsta öryggis og eru gæludýr ávallt á ábyrgð eigenda.“
Hins vegar hafi ábendingar komið frá íbúum í Norðlingaholti, Grafarholti og Grafarvogi í Reykjavík.
„Talið er ólíklegt að það séu minkar sem tengjast þessum atburði.“
Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, telur stöðuna í Mosfellsdal þokkalega góða.
Hann segir færri ábendingar hafa borist um lausa minka í nótt en búist var við. „Það gætu heyrst byssuhvellir í dalnum í dag en þeir hafa snarminnkað.“
Verkefni dagsins er að halda áfram að veiða minkana. „Við ætlum að ná betur utan um ástandið og klára þetta.“
Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands, segir að það að hleypa dýrum út úr einu búi leysi ekki neinn vanda.
„Ef um dýravelferðaraðgerð er að ræða í þessu tilviki þá er það bara til að skaða dýrin sem um ræðir, bæði dýrin í umhverfinu og þessi tilteknu dýr og að sjálfsögðu málstað dýravelferðar,“ segir hún.
Björgunarsveitir hafa verið með gæslu í nágrenni við Dalsbú í Mosfellsdal. Þangað hefur fjöldi manns gert sér ferð til að reyna að berja strokuminka augum.
Björgunarsveitarmenn segja við fréttastofu að mikil umferð fólks hafi verið í gærkvöldi. Þeir stöðvuðu meðal annars ungmenni sem ætluðu sér að fanga mink með háfi og eiga sem gæludýr.
Fólki hefur verið beðið um að nálgast minka ekki. Björgunarsveitir verða áfram við gæslu í dag.
Dýralæknafélag Íslands segir að slepping minka af Dalsbúi í gær sé „ekkert annað en alvarlegt brot gegn velferð þessara dýra og á ekkert skylt við dýravernd eða dýravelferð“.
Félagið lýsir yfir stuðningi við Matvælastofnun, lögreglu og „aðra þá sem nú takast á við þessar krefjandi aðstæður.“
Þóra Jónasdóttir yfirdýralæknir segir að aflífa þurfi strokuminka sem sluppu út fyrir öryggisgirðingar við Dalsbú í Mosfellsdal.
Ekki liggur fyrir hve margir þeir eru en talið er að það sé nokkur fjöldi.
„Þeir geta ekki komið aftur í búið bæði af smitvarnarlegum ástæðum og það er hreinlega búið að rútta öllu fyrirkomulagi í búrunum,“ segir Þóra.