Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, greiddi atkvæði sitt í Frostaskjóli í hádeginu. Hún mætti á kjörstað ásamt fjölskyldu sinni.
Á Svalbarðseyri við Eyjafjörð er 371 á kjörskrá og þrír flokkar í framboði.
Fólk var farið að tínast inn á kjörstað þegar fréttastofa leit þar við í morgun.
Á bílastæðinu hitti Siguróli Sigurðsson fréttamaður fyrir ungan athafnamann. Þar var Vakur Hrafn Plessy, nemandi í Valsárskóla, að selja kleinur til styrktar skólaferðalagi 9. og 10. bekkjar, en þau eru á leiðinni til Danmerkur.
Viðtökurnar létu ekki á sér standa og lagerinn seldist upp. Fréttamenn sögðu þær enda ljúffengar.
Gömul hefð er fyrir því að hringja bjöllum við upphaf kjörfundar í Breiðagerðisskóla í Reykjavík. Engin undantekning var á því í dag.
Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, greiddi atkvæði í Breiðagerðisskóla ásamt manni sínum Tryggva Þór Hilmarssyni.
Einar Jóhannes Guðnason, oddviti Miðflokksins í Kópavogi kaus í Kórnum í dag.
Grýtubakkahreppur við Eyjafjörð er eitt af þeim sjö sveitarfélögum þar sem kosið er í óbundnum kosningum.
281 voru á kjörskrá, en 3 sögðu sig frá því að vera í kjöri, þannig eru 278 í kjöri í kosningum.
Þegar fréttastofa kom við á kjörstað í Grenivík klukkan 11 höfðu 26 greitt atkvæði. Að sögn starfsfólks fer kjörsókn rólega af stað í dag miðað við áður.
Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, mætti á kjörstað ásamt eiginkonu sinni Andreu Gestsdóttur og þremur dætrum þeirra. Hann greiddi atkvæði í Smáranum.
Kosningar eru í fullum gangi í Hafnarfirði, í Lækjarskjóla og á Ásvöllum.
Karólína Helga Guðmundsdóttir, oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði, fór í þjóðbúning og greiddi atkvæði í Lækjarskóla.
Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, er búinn að greiða atkvæði. Líkt og Guðmundur Ingi kaus Ari í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Guðmundur Ingi Þóroddsson, oddviti Flokks fólksins í Reykjavík, er búinn að kjósa. Hann greiddi atkvæði í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Gylfi Þór Þorsteinsson, oddiviti Viðreisnar í Mosfellsbæ, greiddi atkvæði í Lágafellskóla í morgun.
Um 40 manns biðu þess að fá að kjósa fyrir utan Verkmenntaskólann á Akureyri þegar kjörstaðir opnuðu í morgun.
Helga Eymundsdóttir, formaður yfirkjörstjórnar á Akureyri, segir að þar hafi allt farið vel af stað.
„Hér var starfsfólk mætt í vinnu klukkan hálf átta, þau fengu sér smá kaffisopa og smá næringu. Síðan var farið með alla atkvæðaseðla inn í kjördeildir korter yfir átta.
Næst var labbaður hringur og allir kassar innsiglaðir í votta viðurvist og þá voru mættir hér umboðsmenn frá flest öllum framboðum. Síðan opnuðum við strax klukkan níu og það var strax komið fólk hingað þegar að við opnuðum.“
Atkvæðagreiðslan heldur áfram í Vesturbæ Reykjavíkur.
Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, greiddi atkvæði í KR-heimilinu í Frostaskjóli.
Nú þegar kjörstaðir eru opnir fer fólk að týnast inn. Sígilt stef á kjördegi er að smella af myndum af frambjóðendum að greiða atkvæði.
Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins í Reykjavík, mætti í Vesturbæjarskóla til að kjósa.
Margvísleg málefni eru kjósendum hugleikin fyrir kjördag og oft úr vöndu að ráða þegar í kjörklefann er komið.
Fréttastofa fór um landið síðustu vikur og ræddi við oddvita framboðslista í fjölmennustu sveitarfélögunum og má sjá þá þætti hér: Oddvitaumræður.
Þá hafa margir mátað sig við framboð í sínum heimabæjum í kosningaprófi RÚV sem má nálgast hér:
Hér að neðan má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um kosningarnar.
Gleðilegan kjördag!
Í dag verður gengið að kjörborðinu margfræga í sveitarfélögum landsins. Víðast hvar voru kjörstaðir opnaðir klukkan níu og verður lokað klukkan tíu í kvöld.
Fréttastofa RÚV stendur vaktina um allt land og færir ykkur nýjustu fréttir af framvindu mála hér í þessari fréttavakt, sem og öllum okkar miðlum.
Kosningavakan fer í loftið í sjónvarpinu klukkan 21.45 í kvöld og má búast við fyrstu tölum fljótlega eftir að kjörstöðum verður lokað.