Bardagakeppni var slegið upp á suðurbletti Hvíta hússins í gærkvöldi. Tilefnið var áttræðisafmæli Trump forseta og að nafninu til 250 ára afmæli Bandaríkjanna í næsta mánuði.
Viðburðurinn er að mörgu leyti sagður hafa líkst einum af kosningafundum Trump. Áhorfendur kyrjuðu „U-S-A“ allt kvöldið og kanadískur keppandi fékk að heyra að Kanada væri 51. ríki Bandaríkjanna. Trump hefur ítrekað haldið því fram að Bandaríkin ættu að innlima Kanada.
Svartur blettur á samkomunni voru ummæli Josh Hokit, bandarísks keppanda í þungavikt, sem sagði „Og að lokum, Michelle Obama er karlmaður, er það ekki rétt, Bandaríkin?“ í viðtali við Joe Rogan, hlaðvarpsstjórnanda, að bardaga loknum.
Bandarískir repúblikanar hafa um árabil haldið á lofti stoðlausri samsæriskenningu um að Michelle Obama, eiginkona Baracks Obama fyrrverandi forseta, sé í raun og veru karlmaður.
White House UFC fighter Josh Hokit just said: “Michelle Obama is a man… am I right America?” How are you enjoying Trump’s USA? 💁🏻♂️
— Morgan J Freeman (@mjfree.bsky.social) June 15, 2026 at 5:26 AM
[image or embed]
Ummælin voru send út í beinu streymi á efnisveitunni Paramount+. Hún er í eigu David Ellison, auðkýfings og bandamanns Trump, sem sölsar nú undir sig helstu fjölmiðlasamsteypur Bandaríkjanna.
UFC-bardagamótaröðin virðist aftur á móti hafa klippt ummælin út úr viðtalinu í útgáfu sem hún birti á Youtube-rás sinni eftir bardagann.