Julia Wittek er gullsmiður sem hefur búið og starfað í miðborg Reykjavíkur í níu ár. Julia varð illa fyrir barðinu á innbrotahrinu sem gekk yfir miðborgina fyrr í sumar. „Einhver braust inn og stal gimsteinasafninu mínu, öllu silfrinu mínu og verkfærum. Ég var að hugsa um að gefast upp því ég hafði glatað of mörgum hlutum með tilfinningalegt og fjárhagslegt verðmæti,“ segir hún. Vinkona Juliu, Sveindís Anja Þórhallsdóttir, rekur söguna í færslu í íbúahópi miðborgarbúa á Facebook:
Julia varð fyrir gífurlegu tjóni í innbrotahrinunni – „Hún var alvarlega að íhuga að gefast upp“