Söngurinn ómaði um alla Þingvelli í gær, líka baksviðs. Liðsmenn Kaleo kíktu í matartjald starfsmanna og flytjenda sem fór þannig að þeir tóku lagið með Karlakórnum Fóstbræðrum sem voru að snæða kvöldmat.
Árni Harðarson, kórstjóri Fóstbræðra, stjórnaði og Jökull Júlíusson söngvari Kaleo spilaði á gítar og söng Sofðu unga ástin mín, íslenskt þjóðlag, undir fallegri röddun Fóstbræða.
Ragnar Visage ljósmyndari RÚV náði þessu myndskeiði baksviðs. Sjón er sögu ríkari.