„Umferðin frá gekk greiðlega — gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf, en það var hreyfing alltaf,“ bætir lögregluþjónninn við í samtali við Vísi.
Við upphaf tónleikanna myndaðist löng bílaröð frá Grafningsafleggjara að Þingvöllum og gekk umferðin fremur hægt fyrir sig en lögreglan segir við því að búast þegar tuttugu þúsund manns leggja leið sína að Þingvöllum öll á sama tíma.
Að hátíðinni lokinni myndaðist sömuleiðis nokkurt umferðaröngþveiti á bílastæðinu og var sömuleiðis lítil hreyfing af svæðinu.
Á myndskeiði sem tekið var um klukkan eitt frá bílastæðinu að Brúsastöðum mátti sjá fjölda ökumanna eiga í erfiðum með að koma sér út vegna umferðarstíflu.
„Það var í rauninni bara eins og við var að búast þegar margir vilja fara á sama tíma. Það bara gengur ekki. Og við vissum að það yrðu einhverjar tafir,“ segir Einar.
En miðað við fjölda gesta og fjölda ökutækja er lögreglan almennt ánægð með hvernig greiddist úr þeirri umferð.
Spurður hvort lögreglan hafi þurft að sinna einhverjum fleiri málum sem komu upp, svo sem slagsmálum, segir hann að vitaskuld hafi nokkur slík mál komið upp en að engin þeirra séu í frásögur færandi.
„Það voru í rauninni engin mál sem komu upp sem tekur því að tala um. Það voru auðvitað afskipti eins og eðlilegt er í tuttugu þúsund manna hópi, en bara svona minniháttar í sjálfu sér.“
Einar segir að hátt í hundrað lögreglumenn hafi komið að verkefninu, þar á meðal í gæslu á svæðinu, í gæslu á bílastæðunum og við umferðarstýringu inn og út af svæðinu.
„Það er svona upp úr miðnætti sem umferðin toppar, þá var hún hvað þéttust. Svo var hún í rauninni jöfn og þétt fram á þriðja tímann þegar í rauninni síðustu bílar voru að fara.“