Þjóðgarðsvörður segir stórtónleika Kaleo í gærkvöld hafa gengið eins og í lygasögu. Skipuleggjendur hafi tekið vel til eftir sig. Hefðbundin starfsemi taki nú við.
„Já við erum hérna starfsfólk þjóðgarðsins mætt til leiks aftur eftir svona tveggja, þriggja tíma svefn. Það var löng nótt hjá okkur en síðan gekk ótrúlega vel að rýma svæðið hérna. Það var eiginlega bara lyginni líkast hvernig gekk að rýma, “ segir Einar Á. E. Sæmundssen þjóðgarðsvörður.
Sá varla bjórdós eða ruslpappír
Eitthvað rusl hafi verið á hátíðarsvæðinu í gær, en skipuleggjendur hafa staðið vel að tiltekt og ekki snifsi af rusli eftir. Þeir hafi fram á annað kvöld til að fjarlægja síðustu ummerki þeirra.
Ég verð nú kannski að hrósa hátíðargestum, þó að auðvitað hafi sést eitthvað rusl en umgengni var bara til fyrirmyndar fyrir utan á gönguleiðum inn. Það sá varla bjórdós eða ruslpappír eða nokkuð. Ég var eiginlega hálf klórandi mér í hausnum yfir því hvað það var lítið sem lá eftir.
Settu gott fordæmi fyrir viðburðahald
„Fólk var svolítið agndofa og uppnumið yfir því að vera hérna á Þingvöllum á svona viðburði og ég skynjaði ekki annað en að fólki hefði líkað vel og notið þess að vera hérna enda vorum veðurguðirnir þeir sem voru kannski í besta skapinu.“
Hefðbundin starfsemi þjóðgarðsins haldi áfram í dag og von sé á sex skemmtiferðaskipum fyrir hádegi. Heilt yfir hafi tónleikar gærdagsins verið gott fordæmi fyrir viðburðahald í þjóðgarðinum. Þingvallanefnd muni rýna hvernig til tókst og geti horft til þess berist óskir um frekara viðburðahald.
„Þingvallanefnd tók náttúrulega kannski að einhverjum fannst djarfa ákvörðun eða ákvörðun sem væri ekki staðnum sæmandi. En Þingvellir voru í gær samkomustaður þjóðarinnar eins og í gamla daga og það var sko þröngt á þingi og mikil gleði við völd.“