Jökull kom fyrir myndavélum og hlerunarbúnaði heima hjá fyrrum unnustu

Jökull Ísleifsson hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir umfangsmikið umsáturseinelti, ítrekuð brot gegn nálgunarbanni, brot gegn friðhelgi einkalífs og akstur undir áhrifum fíkniefna.
Samkvæmt dómnum beindust brotin að fyrrverandi sambýliskonu hans á tímabilinu frá september 2023 til september 2025. Dómurinn lýsir því hvernig hann hafði ítrekað samband við konuna með símtölum, smáskilaboðum og tölvupóstum þrátt fyrir að hún hefði skýrt lýst því yfir að samskiptin væru óvelkomin og þrátt fyrir að ítrekuð nálgunarbönn hefðu verið í gildi.
Í dómnum kemur fram að hann hafi meðal annars fylgst með ferðum hennar og sent skilaboð sem bentu til þess að hann vissi hvar hún væri stödd, auk þess sem hann hafði samband við fjölskyldumeðlimi hennar til að koma skilaboðum til hennar. Þá var hann sakfelldur fyrir að hafa brotið gegn nálgunarbanni með því að senda henni tölvupósta, hafa samband við son hennar og foreldra og aka í námunda við heimili hennar.
Jafnframt var hann sakfelldur fyrir brot gegn friðhelgi einkalífs eftir að hafa komið fyrir tveimur myndavélum á heimili konunnar án hennar vitundar. Myndavélarnar gerðu honum kleift að fylgjast með henni og hlusta á einkasamtöl hennar. Hann var einnig sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum amfetamíns í september 2023.
Við meðferð málsins hafnaði ákærði flestum sakargiftum, að undanskildum ákærulið um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann hélt því meðal annars fram að samskipti hans við konuna hefðu fyrst og fremst snúist um fjárhagslegt uppgjör og endurheimt eigna eftir sambúðarslit. Brotaþoli lýsti hins vegar því fyrir dómi að háttsemin hefði valdið sér viðvarandi ótta og kvíða, haft alvarleg áhrif á heilsu hennar, atvinnuþátttöku og fjölskyldulíf og að hún hefði um tíma þurft að yfirgefa heimili sitt vegna óöryggis.
Við ákvörðun refsingar lagði dómurinn áherslu á að brotin hefðu verið bæði alvarleg og langvarandi. Þau hefðu beinst að friðhelgi einkalífs og andlegri heilsu brotaþola, verið framin af ásetningi og að hluta til í hefndarskyni með það að markmiði að valda henni ótta og vanlíðan. Dómurinn taldi því ekki unnt að skilorðsbinda refsingu að öllu leyti. Sex mánuðum af átta mánaða fangelsisrefsingu var þó frestað skilorðsbundið til tveggja ára, en tveggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi stendur eftir. Þá var Jökull sviptur ökurétti í þrjú ár.
Hann var jafnframt dæmdur til að greiða brotaþolanum tvær milljónir króna í miskabætur auk vaxta. Auk þess ber honum að greiða málsvarnarlaun verjanda síns, þóknun réttargæslumanns brotaþola og annan sakarkostnað.