Fjárfestarnir Jim Ratcliffe og Guðmundur Kristjánsson, sem kenndur er við Brim, verða nýir hluthafar í fyrirtækinu Fjallalambi á Kópaskeri. Þetta segir Gísli Ásgeirsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Six Rivers sem er í eigu Ratcliffes.
Óvissa hefur verið um framtíð Fjallalambs vegna fjárhagsörðugleika og sagt var frá því í júlí að Byggðastofnun hefði neitað að afskrifa lán sem ríkisstofnunin veitti fyrirtækinu.
Gísli Ásgeirsson segir að fyrirtæki á vegum Ratcliffes muni eiga um 20 prósenta hlut í Fjallalambi. Ekki liggi fyrir hvaða fyrirtæki Ratcliffes muni eiga hlutinn í Fjallalambi.
Fréttastofa sendi Guðmundi Kristjánssyni skilaboð um viðskiptin sem hann hafði ekki svarað þegar fréttin var birt. Framkvæmdastjóri Fjallalambs, Björn Víkingur Björnsson, vildi ekki tjá sig um innkomu fjárfestanna tveggja í fyrirtækið þegar eftir því var leitað.
Bæði bein störf og afleidd undir í málinu
Fjallalamb er stór atvinnurekandi á Kópaskeri en þar voru 11 starfsmenn í fyrra. Tekjur fyrirtækisins námu tæplega 612 milljónum króna og hagnaðurinn var nærri 10 milljónir samkvæmt ársreikningi.
Gísli segir að Fjallalamb sé mikilvægt fyrirtæki í landshlutanum og hluti af innviðum. Mikilvægt sé fyrir fyrirtæki Ratcliffes að reyna að styðja atvinnulífið.
Þá segir Gísli að heimamenn hafi haft samband og spurt hvort Jim Ratcliffe vildi taka þátt í fjárfestingunni til að reyna að bjarga rekstri fyrirtækisins. Upphaflega hafi fyrirtæki Ratcliffes ekki haft sérstakan áhuga á að taka þátt vegna þess að þau hafi ekki neina reynslu af matvælaframleiðslu á Íslandi. Gísli segir að þetta hafi breyst eftir að Guðmundur Kristjánsson kom líka til sögunnar sem mögulegur fjárfestir í Fjallalambi.
Gísli segir að bæði Ratcliffe og Guðmundur séu stórir landeigendur á Norðausturlandi og þeir séu því með umsvif á svæðinu fyrir.
Fyrirtæki Ratcliffes er stór hagsmunaaðili í laxveiði á Norðausturlandi og er leigutaki þekktra laxveiðiáa eins og Selár og Hofsár í Vopnafirði, Hafralónsár í Þistilfirði og Miðfjarðarár í Bakkafirði. Ratcliffe er í 153. sæti yfir ríkustu menn í heimi á lista tímaritsins Forbes. Hann er einna þekktastur fyrir að hafa fjárfest í enska fótboltaliðinu Manchester United.
Fjallað hefur verið um umsvif Ratcliffes á Austurlandi í fréttaskýringaþættinum Þetta helst:
Brim, útgerðarfélagið sem Guðmundur á stóran hlut í og er kenndur við, rekur fiskvinnslu á Vopnafirði og er stærsti atvinnurekandinn í þorpinu.
Fyrirtækið skipti líka tilfinningalegu máli
Gísli segir að hann telji að Fjallalamb skipti miklu máli á Kópaskeri og á svæðinu í kringum bæinn. Hann segir mikilvægi fyrirtækisins ekki bara snúast um bein störf heldur líka óbein og afleidd störf. Samkvæmt Gísla er það mikilvægt byggðamál á svæðinu að fyrirtæki eins og Fjallalamb haldi áfram starfsemi á svæðinu.
,,Fjallalamb er ágætis vörumerki og hefur framleitt góða vöru. Það vilja allir halda í þetta vörumerki. Þetta er meik og breik fyrir marga heimamenn, ekki síst tilfinningalega. Þegar alltaf er verið að tína allar þessar fjaðrir af fuglinum þá verður hann fjaðralaus og drepst úr kulda á endanum,” segir Gísli.
Aðspurður segir Gísli að ekki liggi fyrir hversu mikla fjármuni Jim Ratcliffe muni setja inn í Fjallalamb. Hann segir að gengið verði endanlega frá fjárfestingunni á næstu vikum.