Ís­lenskar systur slá í gegn í módelbransanum - Vísir

Ís­lenskar systur slá í gegn í módelbransanum - Vísir

Ís­lenskar systur slá í gegn í módelbransanum - Vísir

Prag, Berlín og Basel

Júlía er 22 ára gömul með BA í arkítektúr og Senía 27 ára lyfjafræðingur sem er á leið í doktorsnám við Háskólann í Basel. Þær byrjuðu báðar að sitja fyrir sem unglingar.

„Ég byrjaði að módelast á Íslandi þegar ég var fimmtán ára, eftir að umboðsskrifstofa hafði samband við mig. Síðan þá hef ég verið á samningi hjá EY Agency. 

Haustið 2024 flutti ég til Prag í skiptinám og vann þar á samningi með náminu,“ segir Júlía og bætir við: „Ég er mjög þakklát fyrir þá reynslu að starfa erlendis í fyrsta sinn, enda er markaðurinn þar allt annar en heima. Síðastliðinn maí flutti ég síðan til Berlínar, þar sem ég er nú búsett og starfa á samningum víða um Evrópu.“

Júlía er búsett í Berlín og sinnir ýmsum fyrirsætustörfum þar.Aðsend

Það var um sextán ára aldur sem Senía fékk fyrstu tækifærin í bransanum.

„Ég byrjaði hér heima á Íslandi en fyrir fimm árum flutti ég út til Sviss og þá fór ég á samninga þar sem höfðu í för með sér enn fleiri verkefni og samstörf víða um Evrópu. Að búa á meginlandinu er mikill kostur fyrir starfið því maður hefur meiri tök á að taka að sér verkefni með litlum fyrirvara. 

Fyrir mig er það að vinna sem módel samhliða námi og vinnu mjög gefandi og góð tilbreyting frá hversdagsleikanum sem lyfjafræðingur.“

Verkefnin saman skemmtilegust

Systurnar voru frekar samstíga í lífinu þegar þær bjuggu báðar á Íslandi.

„Við vorum mjög líkar þegar við vorum yngri, bæði í útliti og stíl, og við deildum einnig mörgum áhugamálum, eins og að spila í sinfóníuhljómsveit, dansa og auðvitað að módelast. 

Eftir að við fluttum að heiman hafa leiðir okkar aðeins legið í sundur, en við höfum enn mjög náið samband. Við vitum alltaf hvað hin er að bralla og pössum upp á að hittast reglulega,“ segja þær brosandi en þær hafa verið svo heppnar að geta unnið mikið saman, sérstaklega á fyrstu árum fyrirsætuferilsins.

Systurnar elska að vinna verkefni saman.Aðsend

„Núna þegar við erum búsettar á ólíkum stöðum er því miður aðeins minna um það. Að okkar mati eru verkefnin sem við tökum að okkur saman oft þau skemmtilegustu og því erum við alltaf opnar fyrir sameiginlegum verkefnum.“

Góður grunnur að alast upp við mörg tungumál

Júlía flutti til Berlínar í vor og býr þar með kærastanum sínum en stelpurnar eiga rætur að rekja til Íslands, Sviss og Þýskalands.

„Því ólumst við upp við fleiri en eitt tungumál, sem hefur reynst okkur mikill kostur þegar kemur að því að búa erlendis, bæði í námi og starfi sem módel. Við komum þó báðar reglulega heim til Íslands og munum alltaf eiga okkar heimili þar, vini og fjölskyldu.“

Systurnar eru staddar saman í Basel um þessar mundir.Aðsend

Ævintýrin eru á hverju horni hjá systrunum en Júlía lauk bakkalárnámi í arkitektúr við Listaháskóla Íslands síðastliðinn maí.

„Ég stefni á að sækja um meistaranám á næsta ári á Norðurlöndunum eða í Þýskalandi og ætla að vinna fram að því. Síðan eru mörg skemmtileg verkefni framundan, meðal annars tökur í Parma á Ítalíu í næstu viku, ferðalög og fleiri verkefni í Tokyo, Japan,“ segir Júlía brosandi. 

Stóra systir hennar, Senía, fór í meistaranám í lyfjafræði fyrir fimm árum og því fylgdi sérnám í klínískri lyfjafræði í Basel.

„Núna í haust stefni ég á að hefja doktorsnám í lyfjafræði hér úti. Meðfram starfinu sem lyfjafræðingur hafa mér boðist alls konar verkefni víða um Evrópu sem ég hef verið að vinna í. 

Eins og er er ég stödd í Ho Chi Minh í VÍetnam þar sem ég mun einnig fara í verkefni,“ 

segir Senía.

Mikil samkeppni í bransanum

Þær segja ótal margt skemmtilegt við starfið.

„Mér finnst skemmtilegast við starfið að fá að ferðast fyrir verkefni og kynnast fjölbreyttu og hæfileikaríku fólki í bransanum, bæði fyrir framan og fyrir aftan myndavélina. Starfið er líka ótrúlega fjölbreytt, enginn dagur er eins og það er einmitt það sem gerir það svo skemmtilegt,“ segir Júlía og Senía bætir við:

„Ég hef mjög gaman af samstarfinu við fatahönnuði og ljósmyndara. Með starfinu sem módel fær maður vera hluti af verkum listamanna, vera hluti af sköpunarferlinu og gera hugmyndir að veruleika. Það sem stendur upp úr er fólkið og vinátturnar sem hafa orðið til í gegnum starfið.“

Sömuleiðis eru margar hliðar krefjandi.

„Starfið er það ófyrirsjáanlegt að maður veit aldrei hvernig næstu vikur og mánuðir líta út. Einn af krefjandi en jafnframt skemmtilegustu þáttum starfsins er að taka þátt í tískuvikum, það felur í sér mikil hlaup á milli prufa, mátanir og bið eftir símtölum.

Það getur fylgt því mikil streita að bíða klukkutímum saman í röð með fullt af öðru hæfileikaríku fólki til þess eins að fá nokkrar mínútur fyrir framan dómnefnd. Það getur líka verið erfitt að fá höfnun, en það er óhjákvæmilegur hluti af starfinu,“ segir Júlía og Senía tekur undir og bætir við:

„Starfið sem módel getur verið krefjandi á köflum, sérstaklega þegar maður þarf að ferðast mikið fyrir verkefni. Ferðalög fyrir starfið eru þó líka spennandi og opna fyrir ný tækifæri. Fyrir mig hefur það reynt töluvert á vaktarplanið og skipulagningu að koma módelstarfinu saman við starfið sem lyfjafræðingur.“

Júlía og Senía segja eitt það skemmtilegasta við módelstarfið vera að kynnast alls konar fólki.Aðsend

Þær finna báðar fyrir því að í módel-geiranum ríkir mikil samkeppni um stöður, verkefni og útlit og það er stöðugt verið að bera saman.

„Það getur einnig tekið á en með tímanum byggir maður sér upp eins konar varnarskerm. Það er mikilvægt að minna sig á, að það er ekkert persónulegt og ekki taka höfnunum eða leiðinlegum athugasemndum inn á sig.“

Tískuvikur og sjónvarpsverkefni spennandi

Verkefnin sem standa upp úr eru fjölbreytt og fjölmörg og hafa oft verið mikil upplifun.

„Ég hef fengið tækifæri til að taka þátt í fjölmörgum skemmtilegum verkefnum, en nokkur þeirra standa sérstaklega upp úr, þar á meðal verkefni fyrir L’Oréal Paris, sýning fyrir Kasia Kucharska SS27 á tískuvikunni í Berlín og editorial myndataka fyrir Sleek Magazine.

Auk þess fékk ég að taka þátt í King and Conqueror og fleiri sjónvarpsverkefnum sem voru tekin upp á Íslandi. Það var ótrúlega skemmtileg reynsla og gaman að fá innsýn í þann hluta kvikmynda- og sjónvarpsbransans,“ segir Júlía.

Tískuvikur standa líka upp úr hjá Seníu

„Verkefnin sem ég hef unnið eru nokkuð mörg, sérstaklega eftirminnilegt fyrir mig var að taka þátt í viðburðum tískuviku í Basel og tískusýningu í Róm. Auk þess var auglýsing fyrir Rivella, sem er svissneskur gosdrykkur, mjög skemmtileg.

Við erum sammála um það að sérstaklega dýrmætt sé að fá að taka þátt í verkefnum heima á Íslandi fyrir íslensk hönnunarmerki, eins og Hildi Yeoman, Anitu Hirlekar og Júlía nýlega fyrir Karó Pieces, sem og tískusýningum hjá upprennandi fatahönnuðum við Listaháskóla Íslands.“

Senía elskar að sitja fyrir hjá íslenskum hönnuðum og er hér fyrir Hildi Yeoman.Saga Sig

Með brákað rifbein eftir sýningu

Þær hafa sömuleiðis sankað að sér mörgum ógleymanlegum augnablikum úr starfinu.

„Við gætum líklega talið upp óteljandi eftirminnilegar og svolítið steiktar sögur úr verkefnum sem eru mjög fyndnar í dag þegar litið er til baka, en voru kannski ekki jafn skemmtilegar á meðan á þeim stóð.“

Júlía var sem dæmi nýlega nærri send upp á spítala eftir mátun fyrir tískusýningu hér í Berlín.

„Kjólarnir voru úr hörðu efni og svo þröngir að það þurfti átta manns til að klæða módelin í og úr en ég endaði daginn með brákað rifbein og öndunarerfiðleika eftir að hafa hrasað í kjólnum.

Ég hef líka lent í fleiri slíkum atvikum, til dæmis þegar ég þorði ekki að láta vita að skórnir fyrir sýningu pössuðu ekki alveg. Í kjölfarið hrasaði ég, sem betur fer þó aðeins á æfingum og baksviðs.

Kannski er líka skemmtilegt að nefna að verkefnið sem flestir á Íslandi tengja mig við og minnast á er líklega sumarauglýsing ÓB og dansinn minn í henni sem virðist hafa fest sig í minningu hjá mörgum,“ segir Júlía brosandi.

Senía tók nýverið þátt í tískusýningu fyrir brúðarkjóla sem haldin var miðaldakastala sem var ógleymanleg.

„Kjólarnir sem við módelin vorum í voru svo fyrirferðarmiklir en miðalda gangarnir og stigarnir sérstaklega einbreiðir, sem gerði það nánast ómögulegt að mætast á göngunum og reyndi heldur betur á fólkið á bak við tjöldin sem átti í fullu fangi með að aðstoða, bera flíkur og stúlkur upp og niður.

Sjálf er ég hávaxin og það kom nýlega fyrir að karlkyns módelið sem var með mér í auglýsingunni var lágvaxnari en ég. Hann var því látinn standa á palli til að jafna það út.“

Senía hefur klæðst alls kyns kjólum á tískusýningum, hér er hún á tískusýningu í Basel.Aðsend

Ísland sem betur fer nálægt

Heimþráin gerir stundum vart við sig.

„Ég held að það fylgi því alltaf ákveðin heimþrá að flytja að heiman, en það hjálpar mikið að hafa reynslu af því að búa erlendis. Ég er líka heppin að vera ekki að flytja á alveg nýjan stað, ég á vini í Berlín, kærasta og tala auðvitað tungumálið. 

Sem betur fer er Ísland ekki svo langt í burtu og því auðvelt fyrir vini og fjölskyldu að koma í heimsókn,“ segir Júlía. Senía segir sérstaklega auðvelt að finna fyrir henni þegar það eru viðburðir heima sem þær missa af.

„En það hjálpar án efa að tala tungumálið og eiga ættingja hér úti og vini. Svo er mikill kostur að það sé beint flug á milli Sviss og Íslands, svo það er mjög einfalt að koma heim í helgarferðir.“

Þær halda alltaf góðri tengingu heim en eru ekki alveg samstíga í því hvenær þær ætla að flytja heim.

Júlía gerir ráð fyrir því að vera búsett erlendis allavega á komandi árum.

„Bæði fyrir nám og vinnu. Það er þó aldrei að vita nema leiðin liggi aftur heim til Íslands í framtíðinni.“

Senía segir að lokum Ísland verði alltaf hennar heima.

„Sérstaklega ef ég eignast börn í framtíðinni, ég held að það sé ekki til betri staður en Ísland til þess að alast upp.“

#gegn #módelbransanum #slá #systur #íslenskar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262922861d/is-lenskar-systur-sla-i-gegn-i-modelbransanum

📰 Aðrar fréttir

50+: Er ég að verða heyrnar­laus eða eru allir farnir að öskra? - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 1
50+: Er ég að verða heyrnar­laus eða eru allir farnir að öskra? - Vísir
En um leið og þú stígur inn á staðinn mætir þér veggur af hljóði. Þetta er ekki bara lágvært suð af fólki að njóta lífsins; þetta er sambland af bassa...
Margrét fær ekki að áfrýja til Landsréttar
📅 04.10.2026 👁️ 1
Margrét fær ekki að áfrýja til Landsréttar
Landsréttur hefur hafnað beiðni Margrétar Friðriksdóttur um áfrýjunarleyfi vegna dóms héraðsdóms þar sem hún var fundin sek um ærumeiðingar í garð Bar...
Ógnin frá Rússum eykst: fjárfesta í herskipum, kafbátum og öflugum vopnakerfum
📅 04.10.2026 👁️ 1
Ógnin frá Rússum eykst: fjárfesta í herskipum, kafbátum og öflugum vopnakerfum
Ný herskip, kafbátar og vopnakerfi eru á meðal stórtækra fjárfestinga Rússa á norðurslóðum.Wes Streeting varnarmálaráðherra Bretlands og Tore O. Sandv...
Við erum búin að markaðsvæða íþróttastarf barna
📅 04.10.2026 👁️ 1
Við erum búin að markaðsvæða íþróttastarf barna
Kostnaður við íþróttaiðkun barna getur hlaupið á hundruðum þúsunda á ári, samkvæmt nýrri úttekt ASÍ.Tugþúsunda munur getur verið á æfingagjöldum félag...
Íslenskir og ungir menn með íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku
📅 04.10.2026 👁️ 1
Íslenskir og ungir menn með íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku
Einn af hverjum þremur karlmönnum á aldrinum 18–24 ára er ósammála því að karlar og konur eigi að njóta jafnréttis. Þetta kemur fram í skýrslu um stöð...
Meiri­hlutinn sprakk eftir fjóra mánuði - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 1
Meiri­hlutinn sprakk eftir fjóra mánuði - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu en mbl.is greindi fyrst frá. Ekki liggur fyrir hvers vegna samstarfi flokkanna hefur verið slitið en hvorki hefur ná...
Meirihlutinn sprunginn í Suðurnesjabæ
📅 04.10.2026 👁️ 1
Meirihlutinn sprunginn í Suðurnesjabæ
Meirihluti D-listans, Sjálfstæðisflokks og óháðra, og S-listans, Samfylkingar og óháðra, í Suðurnesjabæ er fallinn. Þetta staðfestir Haraldur Helgason...
Hyggst ná öllu land­svæðinu af Hútum - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 2
Hyggst ná öllu land­svæðinu af Hútum - Vísir
Þetta gerist í framhaldi af átökum sem geisað hafa undanfarna daga á milli Húta, sem eru studdir af klerkastjórninni í Íran, og alþjóðlega viðurkenndr...
New bid to save historic Fuerteventura house from demolition
📅 04.10.2026 👁️ 2
New bid to save historic Fuerteventura house from demolition
A new attempt has been launched to protect the Casa de la Cueva de la Negra in southern Fuerteventura from demolition, in the latest development in a ...
Mótmæli setja svip sinn á Frakkland: Íkveikjur, reiði og hundruð handtekin
📅 04.10.2026 👁️ 2
Mótmæli setja svip sinn á Frakkland: Íkveikjur, reiði og hundruð handtekin
Mótmæli setja svip sinn á Frakkland: Íkveikjur, reiði og hundruð handtekin Fréttin4. október 2026ErlentLeave a Comment Franska ríkisstjórnin á í erfið...
Auka næringarlæsi þjóðarinnar
📅 04.10.2026 👁️ 2
Auka næringarlæsi þjóðarinnar
Auka næringarlæsi þjóðarinnar Hjón­in Ingi Torfi Sverris­son og Linda Rakel Jóns­dótt­ir hafa gert ís­lenskt smá­for­rit sem hjálp­ar fólki að fylgj­a...
Framlengja gula viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
📅 04.10.2026 👁️ 2
Framlengja gula viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum hefur verið framlengd til klukkan átta í fyrramálið þegar staðan verður endurmetin. Martina ...
Sigmundur dregur stórar ályktanir um íslenska karla í efa: „Úr hvaða hópum voru þátttakendur Íslands eiginlega valdir?“
📅 04.10.2026 👁️ 2
Sigmundur dregur stórar ályktanir um íslenska karla í efa: „Úr hvaða hópum voru þátttakendur Íslands eiginlega valdir?“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gagnrýnir harðlega umræðu um nýja norræna rannsókn á viðhorfum karla. Jafnréttisstofa bendir sjálf á að íslenska úrtakið ...
Fjórir teknir á rauðu ljósi
📅 04.10.2026 👁️ 2
Fjórir teknir á rauðu ljósi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft í nægu að snúast við að hafa hendur í hári ökufanta. Ökumenn hafa verið stöðvaðir fyrir ýmis brot eins og hr...
Ekki eina leiðin til að upp­fylla skuld­bindingar Ís­lands - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 2
Ekki eina leiðin til að upp­fylla skuld­bindingar Ís­lands - Vísir
Bókun 35 var tekin fyrir af Maríu Rut Kristinsdóttur, þingmanni Viðreisnar, og Snorra Mássyni, þingmanni Miðflokksins á Sprengisandi í morgun. „Mér fi...
Móðir og kennari skilur ekkert í nýja námsmatinu – „Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur“
📅 04.10.2026 👁️ 2
Móðir og kennari skilur ekkert í nýja námsmatinu – „Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur“
Ásdís Björg Gestsdóttir, kennari og móðir drengs í 10. bekk grunnskóla, segir nýtt námsmat ekki gagnast við að veita foreldrum eða nemendum leiðsögn. ...
Ráðherra leggur til leigubremsu
📅 04.10.2026 👁️ 2
Ráðherra leggur til leigubremsu
Frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra til breytinga á húsaleigulögum felur í sér að svokallaðri leigubremsu verði komið á. Formaður Samtaka leigjen...
Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 2
Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI - Vísir
„Ég er sammála nýlegum brottförnum starfsmönnum um að fyrirtækin sem þróa þessa tækni sýni alls ekki nægilega aðgát. En ég tel að við þurfum að líta d...
„Hérna færðu leyfi til að hugsa um þig“
📅 04.10.2026 👁️ 2
„Hérna færðu leyfi til að hugsa um þig“
Nadía Gunnarsdóttir lenti ung í bílslysi og meiddist illa. Stoðkerfi hennar var í lamasessi og henni var tjáð að hún geti ekki eignast börn í framtíði...
„Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 2
„Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ - Vísir
Áform um breytingar á umferðarlögum voru kynnt í samráðsgátt í síðasta mánuði. Þar er meðal rætt að taka upp hlutlæga refsiábyrgð eigenda ökutækis veg...
Sambýlismaður Gypsy Rose Blanchard talinn hafa látist vegna of stórs fíkniefnaskammts
📅 04.10.2026 👁️ 2
Sambýlismaður Gypsy Rose Blanchard talinn hafa látist vegna of stórs fíkniefnaskammts
Ken Urker, barnsfaðir og sambýlismaður Gypsy Rose Blanchard, fannst látinn 1. október, á 34 ára afmælisdaginn sinn. Hann lætur eftir sig tveggja ára d...
Christa Pike's prognosis still unclear after failed execution, lawyer says
📅 04.10.2026 👁️ 2
Christa Pike's prognosis still unclear after failed execution, lawyer says
Pike's lawyer says doctors are still trying to clear two lethal doses of pentobarbital from her body.
Kántrýstjarna storkaði Robert Kraft í húsinu hans – „Frjáls Palestína“
📅 04.10.2026 👁️ 3
Kántrýstjarna storkaði Robert Kraft í húsinu hans – „Frjáls Palestína“
Kántrýstjarnan Zach Bryan ögraði milljarðamæringnum Robert Kraft með því að klæðast bol til stuðnings Palestínu á tónleikum á leikvangi í eigu hans. K...
Fólk láti reyna á hús­ráð áður en það leiti á yfir­fulla Læknavakt - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 2
Fólk láti reyna á hús­ráð áður en það leiti á yfir­fulla Læknavakt - Vísir
„Það er búið að vera mjög mikil veikindi og kannski óvenju snemma, fyrr á ferðinni heldur en við höfum oft séð,“ segir Stefán Ari Guðmundsson, framkvæ...
Sveitar­stjórnin flytur sig um set vegna myglu - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 2
Sveitar­stjórnin flytur sig um set vegna myglu - Vísir
Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð lagði flutningana til samkvæmt nýrri fundargerð frá fundi þess 1. október. Mbl greindi fyrst frá. Í fundargerðinni...
„Nýta prjónaskapinn til að ná þessari ró í hugann“
📅 04.10.2026 👁️ 2
„Nýta prjónaskapinn til að ná þessari ró í hugann“
„Ég nota þetta mikið sjálf til að ná mínum núllpunkti í hversdeginum. Þetta er endurtekin hreyfing. Eitthvað sem maður þarf virkilega að einbeita sér ...
Fyndnustu dýralífsmyndir ársins - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 3
Fyndnustu dýralífsmyndir ársins - Vísir
Eins og hvert einasta ár sem keppnin hefur verið haldin bárust fleiri myndir til hennar en nokkru sinni áður. Að þessu sinni voru þær rúmlega tíu þúsu...
Hringdi á neyðarlínuna til þess að sleppa við að borga fyrir humarinn
📅 04.10.2026 👁️ 3
Hringdi á neyðarlínuna til þess að sleppa við að borga fyrir humarinn
Maður þá þrítugsaldri í Georgíu fylki í Bandaríkjunum hefur verið ákærður fyrir að plata bæði heilbirgðisstarfsfólk og starfsfólk veitingastaðar. Þótt...
Mímir mætti í þjóðbúningi í þingið en gert var grín að honum – „Kyssið minn mjög svo norska rass!“
📅 04.10.2026 👁️ 3
Mímir mætti í þjóðbúningi í þingið en gert var grín að honum – „Kyssið minn mjög svo norska rass!“
Mímir Kristjánsson, hinn hálfíslenski þingmaður, mætti í þjóðbúningi á norska stórþingið. Sökuðu hægri menn hann um að hafa mætt í hrekkjavökubúning.„...
Green Party members back 'Zionism is racism' conference motion
📅 04.10.2026 👁️ 3
Green Party members back 'Zionism is racism' conference motion
The vote has caused divisions among figures at the top of the party at its conference in Brighton.
Röð skjálfta ekki á­hyggju­efni út af fyrir sig - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 3
Röð skjálfta ekki á­hyggju­efni út af fyrir sig - Vísir
„Árið 1968 var stór skjálfti á svæðinu, um sex að stærð, og svo aftur árið 1929, svipaðri stærð, sem fannst vel. Þannig að við erum svona að bíða efti...
Gera þurfi breytingar á þing­sköpum til að efla virðingu og traust - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 3
Gera þurfi breytingar á þing­sköpum til að efla virðingu og traust - Vísir
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að á Íslandi tali þingmenn meira en sést á öðrum þingum og lýsir því sem ákveðnu samhæfingarvandamáli en...
Segir Bandaríkin vilja koma á nýjum viðræðum við Rússa
📅 04.10.2026 👁️ 3
Segir Bandaríkin vilja koma á nýjum viðræðum við Rússa
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti sagði í færslu á samfélagsmiðlum í dag að Bandaríkin væru tilbúin að hafa milligöngu um að hefja aftur viðræður mill...
Gerðu á­rás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 3
Gerðu á­rás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti - Vísir
Brúin liggur yfir Dnipro-ána og markar árásin á hana fjórða daginn þar sem Rússar hafa gert árásir á brýr Kænugarðs. Þúsundir íbúa aka yfir brúna dag ...
US Marine arrested over murder of woman in Okinawa, Japan
📅 04.10.2026 👁️ 2
US Marine arrested over murder of woman in Okinawa, Japan
Japan's government lodged a formal protest with the US, demanding that military officials take action.
UPDATE: Water supplies still disrupted in Yaiza and Teguise after island-wide blackout
📅 04.10.2026 👁️ 3
UPDATE: Water supplies still disrupted in Yaiza and Teguise after island-wide blackout
Water supplies are gradually returning to normal across Lanzarote today following the major power failure that brought the island's electricity system...
Watch: What we know about Russian strikes on Kyiv bridges
📅 04.10.2026 👁️ 2
Watch: What we know about Russian strikes on Kyiv bridges
BBC Ukraine correspondent Dan Johnson is near Kyiv's Northern Bridge, which has been hit for the second day in a row.
Yemen government announces major operation to retake Houthi territory
📅 04.10.2026 👁️ 2
Yemen government announces major operation to retake Houthi territory
The Yemeni president's announcement comes amid an exchange of strikes between the Houthis and the Saudi-led coalition.
„Það skal enginn snerta verkfallsvopn verkalýðshreyfingarinnar“
📅 04.10.2026 👁️ 4
„Það skal enginn snerta verkfallsvopn verkalýðshreyfingarinnar“
„Ég bara segi: Það skal enginn snerta verkfallsvopn verkalýðshreyfingarinnar,“ segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB, í þættinum ...
Mennirnir sem létust voru feðgar - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 4
Mennirnir sem létust voru feðgar - Vísir
Norska ríkisútvarpið (NRK) greinir frá. Maður á þrítugsaldri er í haldi lögreglu grunaður um morð. Mennirnir þrír voru hluti af sama veiðihópi og voru...
British Museum announces changes to ease Bayeux Tapestry queues
📅 04.10.2026 👁️ 4
British Museum announces changes to ease Bayeux Tapestry queues
Measures include extended opening hours, as well as an audio guide and additional seating for visitors.
Arnarnesvegur opnar loks á morgun - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 4
Arnarnesvegur opnar loks á morgun - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Búast megi við einhverjum umferðartöfum og eru ökumenn beðnir um að aka með sérstakri gát og sýn...
Fresta kaupum á byssu sem greinir skaðleg efni – bíða svara frá Geislavörnum ríkisins
📅 04.10.2026 👁️ 5
Fresta kaupum á byssu sem greinir skaðleg efni – bíða svara frá Geislavörnum ríkisins
Kaup Umhverfis- og orkustofnunar á byssu sem skimar fyrir skaðlegum efnum hafa tafist vegna óvissu um áhrif röntgengeisla sem byssan gefur frá sér við...
Yfir fimm þúsund hand­teknir í frönsku stúdentamótmælunum - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 4
Yfir fimm þúsund hand­teknir í frönsku stúdentamótmælunum - Vísir
Édourard Geffray, menntamálaráðherra Frakka, segir að á milli fjögur og fimm hundruð menntaskólum verði lokað á morgun vegna mótmælanna. Nú þegar hafa...
I'm a classic old school Conservative, says Kemi Badenoch
📅 04.10.2026 👁️ 3
I'm a classic old school Conservative, says Kemi Badenoch
The Tory leader seeks to echo Margaret Thatcher as she sets out her guiding political principles.
„Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 4
„Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ - Vísir
Rússar hafa framkvæmt ítrekaðar drónaárásir gegn íbúum og þá hafa myndbönd frá svæðinu sýnt íbúa flýja fótgangandi og á hjólum til að reyna að finna æ...
Skjálfti upp á 3,4 - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 4
Skjálfti upp á 3,4 - Vísir
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands reið skjálftinn yfir klukkan sextán mínútur yfir tólf og var 3,4 að stærð. Skjálftinn var á milli Hamarsin...
Starfsfólkið á frægum bar vildi ekki afgreiða Meghan Markle – „Fólki líkar ekki við hana“
📅 04.10.2026 👁️ 4
Starfsfólkið á frægum bar vildi ekki afgreiða Meghan Markle – „Fólki líkar ekki við hana“
Starfsfólk á verðlaunuðum bar í Bretlandi neitaði að afgreiða Meghan Markle, hertogaynjuna af Sussex, á dögunum. Ástæðan er sú að því líkaði ekki við ...
Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
📅 04.10.2026 👁️ 3
Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði Arnþrúður Karlsdóttir Mynd: RÚV/Skjáskot Rekstur Útvarps Sögu batnaði verulega á síðasta ári og nam hagnaður félagsins ...
„Bátarnir munu stöðvast og flugvélarnar fara af stað“ – Lowe boðar fjöldabrottvísanir
📅 04.10.2026 👁️ 4
„Bátarnir munu stöðvast og flugvélarnar fara af stað“ – Lowe boðar fjöldabrottvísanir
Rupert Lowe, leiðtogi breska stjórnmálaflokksins Restore Britain, boðar umfangsmiklar fjöldabrottvísanir verði flokkur hans við völd í Bretlandi. Í ný...