Íslendingur vann 336 milljónir í Eurojackpot í dag og var meðal þeirra tíu sem skipta með sér öðrum vinningi. Miðinn var keyptur í N1 við Austurveg á Selfossi.
Hver vinningshafi fær 336.393.830 krónur í sinn hlut. Af vinningshöfunum voru fimm frá Þýskalandi, tveir frá Svíþjóð, og einn frá Slóveníu, Finnlandi og Íslandi.
Níu voru með þriðja vinning og fær hver þeirra rúmar 35 milljónir. Enginn hlaut fyrsta vinning.