Við verðum í beinni frá Seyðisfirði þar sem við ræðum við yfirhafnarstjóra um samstarf við lögregluna og hvað það þýðir fyrir íbúa svæðisins að skipið sé farið að sigla á ný til bæjarins. Íslandshótel hafa tryggt sér rekstur hótelanna við Suðurlandsbraut og Nauthólsveg til næstu sautján ára. Við yfirtökuna 1. september verða um 300 starfsmenn hótelanna tveggja endurráðnir og ráðist í þriggja milljarða endurbætur á hótelunum sem hafa sett mark sitt á Reykjavík í áratugi.Við sjáum brot úr Pallborðinu á Vísi þar sem oddvitaefni flokkanna í Hafnarfirði tókust á um helstu deilumál fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Gervigreindin hefur gert vart við sig í umræðunni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og oft erfitt að greina hvenær frambjóðendur nota mállíkön og hvenær ekki. Einn oddviti Sjálfstæðisflokksins þvertekur fyrir það á meðan annar sér ekki eftir staðreyndavillum úr smiðju gervigreindarinnar.Svæðið sem áformað hefur verið undir flugvöll í Hvassahrauni flokkast í nýrri skýrslu Veðurstofunnar undir mesta áhættusvæði hraunflæðis á Reykjanesskaga. Jafnframt fellur það innan svæða með líkur á gosopnun.Þverpólitísk samstaða hefur náðst á Alþingi um að breyta umferðarlögum þannig að eldri borgarar þurfi mun sjaldnar að endurnýja ökuskírteini sín. Formaður Landssambands eldri borgara segir þetta fagnaðarefni.Starlink-búnaði hefur nú verið komið fyrir í skólabíl á Patreksfirði af öryggisástæðum. Hvorki foreldrum né sveitarstjórn þótti forsvaranlegt að daglega væri ekið með börn langa vegarkafla án netsambands.Tindastóll er með bakið upp við vegg fyrir leik þrjú við Stjörnuna í undanúrslitum Bónus deildar kvenna. Troðfullt hús Sauðkrækinga mun styðja liðið til sigurs í Síkinu í kvöld og við verðum að sjálfsögðu í beinni þaðan.