Ís­kaldur töffari, skap­stór snillingur og af­kasta­mikill vinnu­þjarkur - Vísir

Ís­kaldur töffari, skap­stór snillingur og af­kasta­mikill vinnu­þjarkur - Vísir

Ís­kaldur töffari, skap­stór snillingur og af­kasta­mikill vinnu­þjarkur - Vísir

Gunnar Þórðarson lést 29. júlí síðastliðinn, 81 árs gamall, en hann fæddist á Hólmavík 4. janúar 1945, næstelstur sjö barna þeirra Guðrúnar Guðbjörnsdóttur og Þórðar Björnssonar. Fjölskyldan flutti til Keflavíkur þegar Gunnar var átta ára gamall og ólst hann þar upp, einn dáðasti sonur bæjarins.

Þrátt fyrir að vera stórstjarna var Gunnar ekki mikið fyrir það að trana sér fram í fjölmiðlum. Fjölmiðlakonan Edda Andrésdóttir settist hins vegar niður með Gunnari í sjónvarpssal Stöðvar 2 árið 1991 fyrir þáttinn „Inn við beinið“ og fór með honum yfir ferilinn ásamt því að sýna brot úr viðtölum við fjölskyldu og vini.

Vinir Gunnars voru með honum í sjónvarpssalnum, miklar kanónur á borð við Helga Pétursson, Rúnar Júlíusson, Magnús Kjartansson, Erling Björnsson, Engilbert Jensen, Þorstein Eggertsson og Jon Kjell Seljeseth. Síðan litu fleiri góðir gestir við.

„Þórður er laglaus, það hlýtur að vera frá mér“

Edda ræddi meðal annars við systur Gunnars og foreldra hans, Guðrúnu og Þórð, sem lýstu syninum skemmtilega en gátu engar skýringar gefið á því hvaðan tónlistargáfur hans kæmu.

„Ef maður var að lesa yfir honum eða taka hann á beinið þá sagði hann bara „já“ og brosti. Það var ekkert meira. Þá vissi maður það að hann ætlaði að gera þetta sem hann ætlaði að gera þó maður væri að lesa yfir honum, það voru alveg hreinar línur í því. Hann fékk sínu fram,“ sagði Þórður um Gunnar.

Foreldrar Gunnar, Guðrún og Þórður.

Hvaðan kemur tónlistargáfan hans?

„Ég veit það ekki. Þórður er laglaus, það hlýtur að vera frá mér,“ sagði Guðríður.

Eftir að hafa hlustað á lýsingar foreldra sinna í byrjun þáttar greip Gunnar í gítarinn og söng stutta páskaaríu en hann var síst þekktur fyrir að syngja, enda lág metnaður hans ekki í því heldur í því að semja lög.

Geturðu sungið Gunnar?

„Það geta allir sungið, pabbi minn er ekkert laglaus, það er bara misskilningur,“ sagði Gunnar.

Efnilegur knattspyrnumaður og leigubílstjóri á vellinum

Þegar Gunnar var yngri hafði móðir hans vonast eftir því að hann yrði læknir en svo varð ekki. Á yngri árum spilaði Gunnar fótbolta með ÍBK og vann við ýmis störf áður en tónlistin tók yfir.

Hvað heldurðu að þú hafir ætlað að verða þarna á þessum árum í kringum 1950?

„Ég hafði ekki hugmynd um það, vissi ekkert hvað myndi verða,“ sagði Gunnar sem byrjaði ungur að vinna í frystihúsi, fór á síld eitt sumar með pabba sínum þegar hann var fimmtán ára og vann í blikksmiðju í bænum.

„Svo fékk maður bílprófið sautján ára og þá var náttúrulega farið upp á völl og unnið þar á amerískum pick-up,“ sagði Gunnar um fyrstu störf sín.

Gunnar vann þá með Rúnari Júlíussyni sem leigubílstjóri á Keflavíkurflugvelli og þeir „spóluðu þar úr sér bíladelluna“ eins og Rúnar orðaði það í sjónvarpssalnum.

Hafsteinn sagði Gunnar hafa verið efnilegan knattspyrnumann.

Einnig var rætt við Hafstein Guðmundsson, forstöðumann sundstaðanna í Keflavík, um Gunnar sem þótti efnilegur fótboltamaður þegar hann var ungur.

„Ég man vel eftir Gunnari. Hann var með þessum strákum í fótbolta allan daginn, frá því þeir vöknuðu og þar til þeir fóru í háttinn. Gunnar var í fyrsta ÍBK-liðinu sem varð Íslandsmeistari hérna í Keflavík 1959. Þá spilaði Gunnar á hægri kanti,“ sagði Hafsteinn.

„Hann var ansi laginn knattspyrnumaður, fór vel með bolta og hefði ábyggilega getað náð nokkuð langt í knattspyrnunni ef hann hefði haldið áfram,“ bætti hann við.

Bestur undir pressu

Gunnar Þórðarson var gítarleikari, söngvari, útsetjari og upptökustjóri en fyrst og fremst tónskáld og eftir hann liggja yfir sjö hundruð útgefin lög af ýmsu tagi, popplög, söngleikjatónlist, kvikmyndatónlist, óperur og sígilda tónlist. Í þættinum var hann spurður hvernig hann ynni best.

Gunni Þórðar var óviss um hvað hann ætlaði að verða.

„Ég vinn langbest undir pressu og eiginlega bara undir pressu. Ef ég er ekki undir pressu þá er ég bara í rólegheitum,“ sagði Gunnar.

Áttu í nokkrum erfiðleikum með að semja smell, eitthvað sem er alveg borðliggjandi að verði vinsælt. Kanntu ekki formúluna nákvæmlega?

„Maður veit ýmsa hluti en maður veit samt aldrei fyrirfram hvort það gengur, maður heldur það bara,“ sagði Gunnar þá.

Tónlistarmaðurinn Ólafur Gaukur Þórhallsson var einnig kallaður til í sjónvarpssalinn en þegar Hljómar voru ungir að árum fóru þeir á hans fund til að biðja hann um að semja fyrir sig texta.

Hvernig leist þér á þessa ungu stráka frá Keflavík?

„Mér leist nokkuð vel á þá. Það hafði verið skömmu áður að við vorum að spila í Glaumbæ. Þá gekk inn allt í einu, milli laga, röð af óskaplega ungum mönnum með óskaplega mikið hár,“ sagði Ólafur Gaukur um strákana í Hljómum.

Ólafur Gaukur greindi stöðu Gunnars.

„Það var í fyrsta sinn sem ég sá þá, síðan sá ég þá þar sem þeir skunduðu á fund minn og komu allir fjórir til þess að biðja um texta. Það skipti engum togum, það var ekki hægt að segja nei,“ sagði Ólafur.

Hvernig finnst þér hafa ræst úr þessum drengjum?

„Ég sé ekki betur en að það hafi ræst vel úr þeim,“ sagði Ólafur Gaukur.

Edda spurði Ólaf Gauk þvínæst hvernig hann mæti stöðu Gunnars Þórðarsonar í íslenskri tónlist. Hann vildi ekki kafa of djúpt í það en beitti skemmtilegri líkingu.

„Mönnum sést oft yfir það og halda að allt hafi byrjað með sjálfum sér. Það var talsvert sem skeði áður. En eins og ég sagði þér um daginn þá vil ég ekkert vera að meta það frá neinu músíkölsku vísindalegu sjónarmiði hvernig staða hans er í dag. En við vitum það öll að hann er náttúrulega mjög gildur stofn, ef við getum sagt sem svo, í rjóðri léttrar tónlistar á Íslandi. Afar gildur,“ sagði Ólafur Gaukur.

Edda spilaði síðan nokkur vel valin lög Hljóma og spurði Gunnar hvort það hefðu ekki einhver hjónaband orðið til út frá tónlist þeirra.

„Við vorum bara í því, við vorum eins og fleiri í hjónabandsmiðlun,“ sagði Gunnar.

„Hugsaðu þér hverju þú berð ábyrgð á,“ skaut þá einn vinurinn inn í.

Þótt hann hafi samið og spilað öll þessi lög gegnum tíðina þá hlustaði Gunnar nánast aldrei á sína eigin tónlist og átti sárafáar af plötum Hljóma eða annarra sveita sinna.

„Gunnar hugsar örugglega svipað og Steingrímur Hermannsson og Davíð Oddsson, þeir eru löngu hættir að fást við úrklippubækurnar,“ sagði Maggi Kjartans um Gunna í því samhengi.

„Gunnar Þórðarson var auðvitað frægastur allra“

Edda kallaði einnig til Ómar Valdimarsson, blaðamann sem skrifaði Sögu Hljóma árið 1969 eftir að hljómsveitin lagði upp laupana í fyrsta sinn.

„Hljómar voru alveg ofboðslega frægir og ég efast um að nokkurt fyrirbæri á Íslandi geti aftur orðið jafnfrægt og Hljómarnir voru á sínum tíma. Gunnar Þórðarson var auðvitað frægastur allra, hann var líka lagasmiðurinn í hljómsveitinni og það þótti jafnvel ennþá fínna og merkilegra í þá daga en það þykir í dag, að geta búið til lög,“ sagði Ómar um Hljómana.

Ómar Valdimarsson skrifaði Sögu Hljóma.

Það að þeir gætu samið eigin lög sannaði fyrir fólki að þeir væru meira en bara hávær hljómsveit. 

„Það leið mjög stuttur tími þangað til þeir voru orðnir frægir um allt land, það þekktu þá allir: karlar og konur, ungabörn og gamalmenni,“ sagði Ómar.

„Ég man að þegar ég var svona fjórtán-fimmtán, þá fór það eins og eldur í sinu um skólann ef einhver hafði séð þessum frægu Keflavíkurbítlum bregða fyrir í bænum og sá heppni var allt að því tekinn í guðatölu... í korter. Hljómarnir, líklega eins og öll önnur goð æskunnar á hverjum tíma, höfðu yfir sér einhvers konar ljóma, þeir voru eiginlega næsti bær við Bítlana og Stones.“

„Mér finnst satt að segja mesta furða hvað Gunnar Þórðarson og félagar hans hafa sloppið lítið skaddaðir frá því að vera svona ofboðslega frægir,“ sagði Ómar að lokum við mikla kátínu Gunnars og hinna í salnum.

Spillti þessi frægð ykkur ekki neitt?

„Nei, ég held ekki,“ sagði Gunnar. „Við urðum ofboðslega frægir á stuttum tíma og við höfðum svo lítið fyrir því, það bara kom.“

Keflvískur Clint Eastwood

Þorsteinn Eggertsson, blaðamaður, textahöfundur og söngvari, lýsti Gunnari sem ungum manni í Keflavík. 

„Ég þekkti hann nú ekki mikið því hann er töluvert mikið yngri en ég og var bara smágutti þegar ég var byrjaður í bransanum. En það var töluverð sjoppumenning í Keflavík á þessum tíma, fólk hélt annað hvort inni á kaffihúsum eða sjoppum, og hann virkaði á mig sem svona ískaldur töffari,“ sagði Þorsteinn.

Þorsteinn Eggertsson var blaðamaður og textahöfundur.

„Seinna fann ég það út að það sem margir héldu að hann væri feiminn er bara vitleysa, hann er bara svo rólegur í eðli sínu. Hann var svona eins og Clint Eastwood, hann gat mælt fólk upp úr og niðrúr og var það sem heitir á góðri keflvísku kúl.“

Helgi Pé lagði orð í belg um ímyndina sem þjóðin hafði af Gunnari.

„Þjóðin öll heldur að Gunnar Þórðarson sé mjög inn í sig og þessi feimni, til baka-maður einhver. Það er tóm vitleysa,“ sagði Helgi um Gunnar. 

Magnús Kjartansson var með ákveðna kenningu um það af hverju Keflvíkingar og sérstaklega Gunnar Þórðarson náðu að gera sig svona gildandi á sviði popptónlistar á Íslandi.

Magnús Kjartans segir Gunna vera eins og Davíð Oddsson og Steingrím Hermanns.

„Ég held að það sé bara til dæmis eins og með Gunnar hvað maðurinn er mikill dugnaðarforkur og tilbúinn að vinna, hanga yfir því sem þarf að hanga yfir. Hann mætir fyrstur og fer síðastur heim á meðan kaupmannssynirnir úr Reykjavík verða að fara í te til ömmu og mega ekki fara seinna að sofa en ellefu,“ sagði Magnús um Keflvíkinga

„Þegar stjörnurnar fara heim, Maggi, þá vinnum við áfram,“ bætti Gunnar við.

Bestu lögin héldu fyrir honum vöku

Loks var Ólafur Haukur Símaonarson, rithöfundur, leikskáld og textahöfundur, kallaður í salinn en hann og Gunnar unnu saman að mörgum lögum og söngleikjum. Ólafur lýsti því hvernig þeirra samstarfi hefði verið háttað.

„Annað hvort geri ég textann fyrst og Gunnar smíðar síðan lag við eða þá, það sem vekur mér ávallt hroll, ég fæ segulband frá Gunnari og er beðinn um að setja orð við, sem getur verið býsna strembið og er reyndar því erfiðara sem lagið er betra. Þess vegna vil ég helst alls ekki fá góð lög frá Gunnari,“ sagði Ólafur.

Ólafur Haukur ræddi um samstarf sitt með Gunnari.

„Bestu lögin sem ég hef fengið frá honum hafa haldið fyrir mér vöku, ekki dögum saman heldur nóttum saman, vegna þess að í rauninni held ég að þau hafi í sér þau gæði að það er ekki hægt að láta þau frá sér nema með þokkalega góðum texta.“

Ólafur lýsti einnig skapi Gunnars í samstarfinu.

„Hann er mjög ljúfur á yfirborðinu en, eins og hefur komið fram í þessum þætti, er hann undir niðri skapmaður en hann hefur lag á því að virkja sitt skap á jákvæðan hátt,“ sagði Ólafur og bætti við: „Ég hef aldrei lent í neinum illindum við hann en ég vildi ekkert endilega lenda í því.“

#afkastamikill #skapstór #snillingur #töffari #ískaldur


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262915384d/is-kaldur-toffari-skap-stor-snillingur-og-af-kasta-mikill-vinnu-thjarkur

📰 Aðrar fréttir

Njáll Trausti sagður hafa beðið um of viðkvæmar upplýsingar - „Gera ógnaraðilum kleift að kortleggja tækniumhverfi“
📅 30.10.2026 👁️ 1
Njáll Trausti sagður hafa beðið um of viðkvæmar upplýsingar - „Gera ógnaraðilum kleift að kortleggja tækniumhverfi“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir í skriflegu svari við fyrirspurn Njáls Trausts Friðbertssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, ...
Lárus hættir sem aðstoðarmaður Jóhanns Páls
📅 30.10.2026 👁️ 2
Lárus hættir sem aðstoðarmaður Jóhanns Páls
Lárus M. K. Ólafsson hefur lokið störfum sem aðstoðarmaður Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra. Hann tilkynnti starfsloki...
Ráð­herrar brugðu á leik og tóku lagið - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Ráð­herrar brugðu á leik og tóku lagið - Vísir
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra birtir mynd af sér með Loga Einarssyni, Eyjólfi Ármannssyni, Jóhanni Páli Jóhannssyni, Daða Má Kristóferssyni o...
Jakob Frímann lýsir neyðarlegu atviki með Davíð Oddssyni – „Lágum í tjaldhrúgunni með höfuðin úti“
📅 30.10.2026 👁️ 2
Jakob Frímann lýsir neyðarlegu atviki með Davíð Oddssyni – „Lágum í tjaldhrúgunni með höfuðin úti“
Út er komin bókin Davíðstíminn: Sjálfstæð saga leiðtoga og lands eftir feðgana Reyni Traustason og Jón Trausta Reynisson. Koma þar fram ýmsar sögur se...
Í hár saman um mörk tjáningarfrelsis predikarans umdeilda - „Rétturinn til þess að hvetja til þess að myrða aðra“
📅 30.10.2026 👁️ 2
Í hár saman um mörk tjáningarfrelsis predikarans umdeilda - „Rétturinn til þess að hvetja til þess að myrða aðra“
Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður Pírata og Þórarinn Hjartarson stjórnandi hlaðvarpsins Einnar Pælingar hafa deilt töluvert í dag á Facebook um m...
Íbúar ósammála um ágæti vindorkuvers
📅 30.10.2026 👁️ 2
Íbúar ósammála um ágæti vindorkuvers
Íbúar í Norðurþingi eru ósammála um fyrirhugað vindorkuver að Hnotasteini. Framkvæmdaraðilar lofa sveitarfélaginu tekjum og íbúum störfum.Franska fyri...
Police deployed during stand-off over control of Poland's top court
📅 30.10.2026 👁️ 2
Police deployed during stand-off over control of Poland's top court
It comes after the government suspended two senior justices and moved to bring criminal charges against them.
Police deployed during stand-off over control of top Poland court
📅 30.10.2026 👁️ 2
Police deployed during stand-off over control of top Poland court
The escalation came after the government suspended two senior justices and moved to bring criminal charges against them.
King visits Guyanan slave rebellion site on Caribbean tour
📅 30.10.2026 👁️ 2
King visits Guyanan slave rebellion site on Caribbean tour
Hundreds of slaves were killed by colonial leaders in the Demerera rebellion of 1823, with many survivors executed.
King visits Guyanese slave rebellion site on Caribbean tour
📅 30.10.2026 👁️ 2
King visits Guyanese slave rebellion site on Caribbean tour
Hundreds of slaves were killed by colonial leaders in the Demerera rebellion of 1823, with many survivors executed.
Ó­sáttir sendlar bjóða Wolt fram að­stoð sína - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Ó­sáttir sendlar bjóða Wolt fram að­stoð sína - Vísir
„Ég og ökumennirnir stöndum með Wolt í tengslum við þessar hótanir. Ef við getum hjálpað á einhvern hátt þá er ég tilbúinn í það. Ef þau hafa einhverj...
Annað hvort þarf að forgangsraða eða taka velferðina að láni
📅 30.10.2026 👁️ 2
Annað hvort þarf að forgangsraða eða taka velferðina að láni
Samband íslenskra sveitarfélaga tók saman uppgjör fimm stórra sveitarfélaga, Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Akureyrar. Við ræddum...
Læra að flétta á barnum
📅 30.10.2026 👁️ 2
Læra að flétta á barnum
Ráðþrota pabbar sameinast á bar í Hveragerði til að að læra að flétta. Eftirspurnin er mikil og skipuleggjandinn hefur fyllt fjögur námskeið.Hólmfríðu...
Engar refsiheimildir við sölu ólöglegra peptíða
📅 30.10.2026 👁️ 2
Engar refsiheimildir við sölu ólöglegra peptíða
Innkirtlasérfræðingur segir að lögleg peptíð geti markað þáttaskil í lækningu og meðferð margra alvarlegra sjúkdóma. Ólöglegur innflutningur efnanna s...
Fékk á­minningu fyrir að láta maka sinna störfum í skólanum - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Fékk á­minningu fyrir að láta maka sinna störfum í skólanum - Vísir
„Slíkt er með öllu óheimilt samkvæmt reglum iClean og var starfsmaðurinn áminntur skriflega. Fyrirtækið hefur upplýst Mosfellsbæ um viðbrögðin við atv...
Lét maka vinna fyrir sig í skólanum - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Lét maka vinna fyrir sig í skólanum - Vísir
„Slíkt er með öllu óheimilt samkvæmt reglum iClean og var starfsmaðurinn áminntur skriflega. Fyrirtækið hefur upplýst Mosfellsbæ um viðbrögðin við atv...
Segir sendingu Icelandair varða við lög
📅 30.10.2026 👁️ 3
Segir sendingu Icelandair varða við lög
Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir tölvupóstsendingu flugrekstrarstjóra Icelandair til flugmanna með samningstillögu í kjaradeilu félaga...
Vilhjálmur segir sinn gamla flokk í bullandi vandræðum - Þetta sé stóra verkefnið núna
📅 30.10.2026 👁️ 4
Vilhjálmur segir sinn gamla flokk í bullandi vandræðum - Þetta sé stóra verkefnið núna
Vilhjálmur Egilsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að sinn gamli flokkur sé í bullandi vandræðum og þurfi að fara í naflaskoðun á ...
Jakob Frímann lýsir neyðarlegu atviki með Davíði Oddssyni – „Lágum í tjaldhrúgunni með höfuðin úti“
📅 30.10.2026 👁️ 4
Jakob Frímann lýsir neyðarlegu atviki með Davíði Oddssyni – „Lágum í tjaldhrúgunni með höfuðin úti“
Út er komin bókin Davíðstíminn: Sjálfstæð saga leiðtoga og lands eftir feðgana Reyni Traustason og Jón Trausta Reynisson. Koma þar fram ýmsar sögur se...
Meta semur sig frá dómsmáli um skaða samfélagsmiðla
📅 30.10.2026 👁️ 3
Meta semur sig frá dómsmáli um skaða samfélagsmiðla
Meta semur sig frá dómsmáli um skaða samfélagsmiðla Meta hefur samið utan dóm­stóla í próf­máli vegna meints skaða sam­fé­lags­miðla á ung­mennum. Ste...
Skorar á samstarfsaðila borgarinnar að halda aftur af verðhækkunum
📅 30.10.2026 👁️ 3
Skorar á samstarfsaðila borgarinnar að halda aftur af verðhækkunum
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur sent samstarfsaðilum og birgjum Reykjavíkurborgar áskorun um að sýna aðhald í verðlagningu á komandi misserum.„...
Stjórn­endur Sorpu slegnir - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Stjórn­endur Sorpu slegnir - Vísir
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Gunnari Dofra Ólafssyni,sviðsstjóra þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu. Samtökin Villikettir greindu frá því að kött...
Styrkja fjarskipti á fimm stöðum á landinu
📅 30.10.2026 👁️ 3
Styrkja fjarskipti á fimm stöðum á landinu
Byggja á upp og styrkja fjarskiptainnviði á fimm stöðum á landinu. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði tvo samninga þess efnis í dag.Annar...
Starfsmaður fékk maka sinn til að sinna ræstingum í leyfisleysi
📅 30.10.2026 👁️ 3
Starfsmaður fékk maka sinn til að sinna ræstingum í leyfisleysi
Ræstingafyrirtækið iClean gaf út vinnustaðaskírteini fyrir allt starfsfólk sitt eftir vinnustaðaeftirlit Eflingar í grunnskólum Mosfellsbæjar í haust....
Peningarnir frá Britney hættu að berast – Nú er fyrrverandi eiginmaðurinn í vondum málum
📅 30.10.2026 👁️ 3
Peningarnir frá Britney hættu að berast – Nú er fyrrverandi eiginmaðurinn í vondum málum
Kevin Federline, fyrrverandi eiginmaður poppstjörnunnar Britney Spears, stendur nú frammi fyrir málsókn vegna skulda upp á fleiri milljónir króna.Máls...
Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 4
Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna - Vísir
Líkt og Vísir hefur fjallað um gaf Héraðssaksóknari nýverið út ákæru á hendur þeim Vytautas Saslauskas og Arturas Sodys ásamt 68 öðrum fyrir umfangsmi...
Biðst afsökunar og lætur sig hverfa af X - Hvatti til að kjarnorkuvopn væru gerð klár
📅 30.10.2026 👁️ 3
Biðst afsökunar og lætur sig hverfa af X - Hvatti til að kjarnorkuvopn væru gerð klár
Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins hefur beðist afsökunar á því að hafa hvatt forseta Frakklands til að senda hermenn ti...
Olíurisarnir græða stórfé á stríðinu í Mið-Austurlöndum
📅 30.10.2026 👁️ 4
Olíurisarnir græða stórfé á stríðinu í Mið-Austurlöndum
Olíurisarnir græða stórfé á stríðinu í Mið-Austurlöndum Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum...
Mikilvægt að leyfa starfsfólki að kveðja með reisn
📅 30.10.2026 👁️ 4
Mikilvægt að leyfa starfsfólki að kveðja með reisn
Atvinnuleysi er að aukast og fréttir af uppsögnum verða tíðari. Reykjavíkurborg sagði upp 50 manns í hópuppsögn í vikunni og hefur lagt niður 130 stöð...
Borgarbókasafninu gert að skera niður um 5%
📅 30.10.2026 👁️ 3
Borgarbókasafninu gert að skera niður um 5%
Borgarbókasafninu hefur verið gert að skera niður um 85 milljónir króna. Borgarbókaverði var tilkynnt um aðhaldskröfuna í september og hún tilkynnti s...
Hitafundur á Raufarhöfn
📅 30.10.2026 👁️ 4
Hitafundur á Raufarhöfn
Franska fyrirtækið Qair efndi til kynningarfundar á samfélagslegum og umhverfisáhrifum sem að vindorkuver á Hnotasteini myndi hafa á nærumhverfið. Fun...
Stefáni féllust hendur þegar hann frétti hvaða tveimur var sagt upp: „Þetta má hreinlega ekki gerast!“
📅 30.10.2026 👁️ 3
Stefáni féllust hendur þegar hann frétti hvaða tveimur var sagt upp: „Þetta má hreinlega ekki gerast!“
Stefán Pálsson borgarfulltrúi Vinstrisins segir að honum hafi fallist hendur við að frétta að Reykjavíkurborg hafi sagt upp tveimur af þremur starfsmö...
„Talsmönnum þessara ofstækis-skoðanna á ekki að hleypa inn í land okkar!“
📅 30.10.2026 👁️ 4
„Talsmönnum þessara ofstækis-skoðanna á ekki að hleypa inn í land okkar!“
Hjörtur Magni Jóhannsson prestur Fríkirkjunnar segir að skoðanir pakistanska klerksins og sharíadómarans Muhammad Taqi Usmani vera eitur, talsmenn slí...
Heimir Már biðst afsökunar og lokar aðgangi sínum á X
📅 30.10.2026 👁️ 4
Heimir Már biðst afsökunar og lokar aðgangi sínum á X
Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri og upplýsingafulltrúi þingflokks Flokks fólksins, hefur beðist afsökunar á orðalagi athugasemdar þar sem hann h...
Lækka laun kjörinna fulltrúa og bæjarstjóra
📅 30.10.2026 👁️ 4
Lækka laun kjörinna fulltrúa og bæjarstjóra
Bæjarstjórn sveitarfélagsins Stykkishólms samþykkti í gær tillögu forseta bæjarstjórnar um tímabundnar launalækkanir kjörinna fulltrúa.Laun bæjarfullt...
Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife
📅 30.10.2026 👁️ 2
Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife
Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife Mynd: Hello Canary Islands Lögregla fylgist nú náið með skilaboðum sem dreifast á netinu o...
Úkraínumenn sagðir leggja aftur til atlögu að rússneskum olíuhreinsistöðvum
📅 30.10.2026 👁️ 3
Úkraínumenn sagðir leggja aftur til atlögu að rússneskum olíuhreinsistöðvum
Úkraínumenn hafa að nýju hafið árásir á ný á olíuhreinsunarstöðvar í Rússlandi eftir stutt hlé. Þetta sagði varaforsætisráðherra Rússlands í dag og sa...
Leó fyrstur páfa til að greiða atkvæði í bandarískum kosningum
📅 30.10.2026 👁️ 4
Leó fyrstur páfa til að greiða atkvæði í bandarískum kosningum
Leó páfi XIV hefur greitt atkvæði utan kjörfundar í þingkosningum á miðju kjörtímabili Bandaríkjaforseta. Kjördagur er næsta þriðjudag. Páfinn er fyrs...
Crypto giant Binance attempting to recover $6.3bn stolen in hack linked to North Korea
📅 30.10.2026 👁️ 2
Crypto giant Binance attempting to recover $6.3bn stolen in hack linked to North Korea
The cyber-attack, which the company describes as complex, is believed to be the largest ever of its kind.
Veltir fyrir sér hvort Við­skipta­ráð haldi að Ís­lendingar séu hálf­vitar - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Veltir fyrir sér hvort Við­skipta­ráð haldi að Ís­lendingar séu hálf­vitar - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í aðsendri grein Andra Snæs á Vísi. Tilefnið er skýrsla Viðskiptaráðs undir yfirskriftinni: Kraftur í kortunum: lei...
Nablinn leggur bleyjuna á hilluna - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Nablinn leggur bleyjuna á hilluna - Vísir
Andri greinir frá þessum tíðindum á Fésbókinni með fallegri kveðjum og skemmtilegri myndaröð af samstarfsfélögum og skjólstæðingi. „Eftir tæplega átta...
Nablinn hættur á leik­skóla - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 4
Nablinn hættur á leik­skóla - Vísir
Andri greinir frá þessum tíðindum á Fésbókinni með fallegri kveðjum og skemmtilegri myndaröð af samstarfsfélögum og skjólstæðingi. „Eftir tæplega átta...
Heimir Már biðst af­sökunar á orðum sínum - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 4
Heimir Már biðst af­sökunar á orðum sínum - Vísir
Heimir Már skrifaði í gær ummæli við færslu Emmanuel Macron Frakklandsforseta þar sem hann hvatti forsetann til að senda hermenn til Úkraínu og hafa k...
Receptionist among three arrested after €200 stolen from hotel room in Maspalomas
📅 30.10.2026 👁️ 2
Receptionist among three arrested after €200 stolen from hotel room in Maspalomas
Three people have been arrested after €200 was allegedly stolen from a holidaymaker’s hotel room in Maspalomas, Gran Canaria, in a plot police believe...
Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumar­búðir kóngafólksins - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumar­búðir kóngafólksins - Vísir
Epstein og Maxwell eru talin hafa heimsótt kastalann ásamt Mountbatten-Windsor sem áður var þekktur sem Andrés prins. Epstein lést 66 ára gamall í fan...
Russell Brand accusers 'haunted' for years by alleged crimes, court hears
📅 30.10.2026 👁️ 2
Russell Brand accusers 'haunted' for years by alleged crimes, court hears
The women involved in the case had "nothing to gain" apart from "some closure", the prosecutor says.
Icelandair sendi flugmönnum tillögur í kjaradeilunni fram hjá FÍA
📅 30.10.2026 👁️ 3
Icelandair sendi flugmönnum tillögur í kjaradeilunni fram hjá FÍA
Icelandair hefur sent flugmönnum félagsins tillögur sínar að lausn kjaradeilu við Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA).Jón Þór Þorvaldsson, formaður...
Hroll­vekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Hroll­vekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna - Vísir
Fyrir átta árum leitaði Vísir til Páls Óskar eftir hrollvekjumeðmælum. Hann mælti þar með fimm hrollvekjum sem væru skylduáhorf og svo fimm til viðbót...
Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn
📅 30.10.2026 👁️ 2
Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn
Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri ReykjavíkurGerður er afar ósátt við nýjustu uppsagnahrinu borga...
Reiði meðal lögreglumanna
📅 30.10.2026 👁️ 4
Reiði meðal lögreglumanna
Hótunum í garð lögreglumanna hefur fjölgað síðustu árin en þær virðast þó hafa litlar sem engar afleiðingar í för með sér. Lögreglumenn eru margir rei...