Íris Helga er ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu hennar.
Ákæruliðirnir eru tugir talsins en hún neitaði sök í þeim öllum.
Samkvæmt ákæru frá 7. apríl er hún sökuð um hótanir, ærumeiðingar, rangar sakargiftir, skjalafals og barnaverndarlagabrot á árunum 2022 til 2025.
Hún á meðal annars að hafa sakað menn opinberlega um barnaníð, ofbeldi og nauðgun. Þá er hún sökuð um að hafa fengið annan mann til að maka saur á hurðarhúna heimilis og bíls. Maðurinn er einnig ákærður.
Hún er einnig sökuð um að hafa komið að heimili með krukku sem hún sagði innihalda fóstur. Gerðar eru bótakröfur upp á samtals 9,25 milljónir króna og brotin geta varðað allt að fjögurra ára fangelsi.
Fréttin er í vinnslu