Íranski herinn gerði árásir á bandaríska sjóherstöð í Barein í nótt. Ekki liggur fyrir hvort mannfall eða tjón hafi orðið í árásunum. Íranski herinn gerði einnig árásir á bandarískar herstöðvar í Kúveit og á eldsneytistanka á Al Azraq-herstöðina í Jórdaníu. Jórdanski herinn skaut niður tíu írönsk flugskeyti.
Bandaríski herinn greindi frá árásum í Íran í færslu á X. Samkvæmt færslunni voru árásirnar á eftirlitskerfi, hernaðarlega innviði og neðanjarðarvopnabirgðageymslur í Íran.
Sprengingar heyrðust í Yazd í mið Íran og í suður Íran. Íranski ríkisfjölmiðillinn IRNA segir að þrír hafi verið drepnir og átta séu særðir eftir árásir bandaríska hersins í Hormozgan-héraði í suður Íran.
Íranski byltingarvörðurinn sagði í tilkynningu í gærkvöld á íranska ríkisfjölmiðlinum IRNA að tvö olíutankskip hefðu sprungið þegar skipin sigldu á tundurdufl í Hormússundi. Miðstjórn bandaríska hersins sendi frá sér tilkynningu í nótt þar sem segir að þessi fullyrðing sé ósönn.
Hóta stórfelldum árásum á ný
Stjórnvöld í Teheran hafa hótað því að hefja stórfelldar árásir á ný ef árásir Bandaríkjanna halda áfram. Íbúar landsins hafa verið hvattir til að draga úr rafmagnsnotkun, þar með talið notkun loftkælingar, því raforkukerfi landsins er undir miklu álagi vegna árása Bandaríkjahers á orkuinnviði undanfarna daga.
Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, fordæmdi í gær árásir á borgaralega innviði í Íran og víðar í heimshlutanum og segir árásirnar óásættanlegar.