Innkalla húsgögn vegna köfnunarhættu

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á innköllun á mjúkum húsgögnum frá bObles fyrir börn, þau eru framleidd úr EVA frauði. Vörurnar hafa verið seldar í nokkrum litum og útfærslum. Vörurnar geta molnað og myndað smáa hluti. Lítil börn geta sett slíka hluti upp í sig og við það skapast köfnunarhætta.
Athugið að innköllunin á ekki við um allar vörur en í einhverjum tilfellum getur efnið molnað, þetta á við vörur sem framleiddar voru á tímabilinu 2021 til mars 2026.
Varan hefur verið seld í vefverslun Coolshop hérlendis og einnig í erlendum vefverslunum.
Neytendur sem hafa keypt umræddar vörur eru beðnir um að hætta notkun þeirra sem fyrst og hafa samband við þann söluaðila sem vörurnar voru keyptar af fyrir frekari upplýsingar.
Einnig er hægt að hafa beint samband við framleiðanda varanna